Eva Rakel Hallsdóttir hefur gengið í raðir Fjölnis og leikur með liðinu í Grill66-deildinni. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni fyrr í dag. Þar segir að Eva Rakel hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið. ,,Eva Rakel er öflugur og fjölhæfur hornamaður sem er uppalin hjá Fjölni. Hún hefur verið erlendis við nám undanfarin ár en er nú búin að taka fram handboltaskóna á ný og komin aftur á kunnuglegar slóðir í Grafarvoginum. Eva þekkir félagið vel og hefur þegar fallið vel inn í leikmannahópinn. Það er mikið ánægjuefni að fá hana aftur til liðs við Fjölni og við hlökkum til að fylgjast með henni á vellinum í vetur." segir í tilkynningunni frá Grafarvogsliðinu. „Það er ótrúlega gaman að vera komin aftur í Fjölni. Ég er mjög spennt fyrir tímabilinu fram undan og hlakka mikið til að spila með þessum geggjuðu stelpum," sagði Eva Rakel. Fjölnir er í 4.sæti Grill66-deildarinnar með fimm stig að loknum sex leikjum. Liðið tekur á móti Víking næstkomandi föstudag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.