Þýska úrvalsdeildarliðið Frisch Auf Göppingen heldur áfram að styrkja leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil en félagið hefur nú staðfest komu danska hornamannsins Patricks Boldsen frá Bjerringbro-Silkeborg. Göppingen hefur verið áberandi á félagaskiptamarkaðnum að undanförnu og var Einar Bragi Aðalsteinsson leikmaður Kristianstad í Svíþjóð orðaður við félagið á dögunum. Boldsen, sem er 23 ára gamall, hefur skrifað undir þriggja ára samning við Göppingen sem tekur gildi sumarið 2027 og gildir til sumarsins 2030. Daninn er örvhentur hægri hornamaður og hefur verið í stóru hlutverki hjá Bjerringbro-Silkeborg undanfarin ár. Hann hefur meðal annars leikið með yngri landsliðum Dana. Þetta eru önnur félagaskiptin sem Göppingen staðfestir á skömmum tíma en félagið hafði áður tryggt sér norska hægri skyttuna David Walstad Haugstvedt frá Drammen. Göppingen virðist því vera að leggja mikla áherslu á að styrkja leikmannahóp sinn með ungum og efnilegum leikmönnum frá Norðurlöndunum. Á dögunum greindi þýski miðillinn Stuttgarter Zeitung frá áhuga Göppingen á Einari Braga Aðalsteinssyni, sem hefur verið einn af lykilmönnum Kristianstad í sænsku úrvalsdeildinni. Einar Bragi er 24 ára gamall og gekk til liðs við Kristianstad frá FH sumarið 2024. Hann varð sænskur meistari með félaginu á síðustu leiktíð og hefur einnig vakið athygli fyrir frammistöðu sína í Meistaradeild Evrópu. Samkvæmt þýskum fjölmiðlum er Einar Bragi einn þeirra leikmanna sem Göppingen hefur til skoðunar vegna mögulegra breytinga á vinstri skyttustöðu félagsins næsta sumar. Fyrir hjá þýska félaginu er íslenski landsliðsmaðurinn Ýmir Örn Gíslason, sem er jafnframt fyrirliði liðsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.