Ómyrkur í máli um frammistöðu Hafdísar
HSÍ

Frammistaða íslenska kvennalandsliðsins í handbolta í vináttulandsleikjunum tveimur gegn Póllandi var til umræðu í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Þar gerði Einar Ingi Hrafnsson meðal annars markvörslu íslenska liðsins að umtalsefni og lagði áherslu á mikilvægi þess að Hafdís Renötudóttir kæmi sér í sitt besta form fyrir komandi heimsmeistaramót.

Hafdís, sem leikur með Val, hefur glímt við meiðsli að undanförnu og misst af leikjum vegna þeirra. Einar Ingi telur mikilvægt að hún nýti næstu vikur vel til að koma sér í leikform áður en flautað verður til leiks á stórmótinu.

„Varnarleikurinn þarf að smella miklu betur og síðan var markvarslan ekki alveg eins góð og maður hefði viljað. Hafdís þarf að vinna gríðarlega vel þann mánuð sem er fram að móti. Hún þarf að koma sér í alvöru stand og í leikform. Hún hefur ekkert efni á því að vera að missa fullt af leikjum. Þetta er bara ekki þannig að þú ýtir bara á „play“ og byrjar að verja fullt af boltum, ekki á stórmótum allavega og ekki í þessum alþjóðlega bolta,“ sagði Einar Ingi í Handkastinu.

Hann hrósaði jafnframt Söru Sif Helgadóttur fyrir hennar frammistöðu gegn Póllandi en hún kom inn á og sýndi að íslenska liðið gæti treyst á fleiri markverði.

„Sara Sif Helgadóttir kom ágætlega inn og var með átta varða bolta og stimplaði sig vel inn og sýndi þjálfurunum að það sé hægt að rúlla á markvörðunum. Við gefum okkur það að Hafdís sé sá markvörður sem verður númer eitt en til þess að það virki þarf hún að koma sér í leikform og æfa gríðarlega vel næstu vikur fram að móti. Hún var ekki góð í báðum þessum leikjum.“

Einar Ingi telur að frammistaða Hafdísar geti ráðið miklu um möguleika íslenska liðsins á heimsmeistaramótinu og segir mikilvægt að hún nái sínu besta fram þegar á hólminn er komið.

„Lykillinn að því að við eigum einhvern möguleika á þessu stórmóti er að Hafdís verði á eldi í Rúmeníu,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson að lokum í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins.

Stymmi klippari benti á að fjórar umferðir í Olís-deild kvenna væru fram að stórmóti og Hafdís gæti nýtt þær vikur vel.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top