Áfrýjunardómstóll Evrópska handknattleikssambandsins (EHF) hefur hafnað áfrýjun króatíska stórliðsins Zagreb vegna tveggja leikja banns Jovica Nikolic, leikmanns félagsins. Nikolić fékk beint rautt spjald í leik Zagreb gegn danska stórliðinu Álaborg í Meistaradeild Evrópu þann 14. október síðastliðinn. Þar sparkaði Jovica Nikolic í klofið á Juri Knorr, leikmanni Álaborgar. Atvikið átti sér stað þegar rúmar fimmtán mínútur voru liðnar af síðari hálfleik en aganefnd EHF úrskurðaði Nikolić í tveggja leikja bann vegna alvarlegrar óíþróttamannslegrar hegðunar. Forráðamenn Zagreb voru ósáttir við niðurstöðuna og ákváðu að áfrýja úrskurðinum. Áfrýjunardómstóll EHF staðfesti hins vegar í dag fyrri niðurstöðu og stendur tveggja leikja bann Nikolić því óbreytt. Nikolić verður þar af leiðandi ekki með Zagreb þegar liðið mætir Celje frá Slóveníu í Meistaradeildinni á miðvikudaginn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.