Frábær fyrri hálfleikur lagði grunninn að sigri Aftureldingar
Egill Bjarni Friðjónsson

Afturelding vann fjögurra marka sigur á Þór, 38-34, þegar liðin mættust í Olís-deild karla í Mosfellsbæ í kvöld. Heimamenn léku virkilega vel í fyrri hálfleik og lögðu þar grunninn að sigrinum en Þórsarar komu til baka í síðari hálfleik án þess þó að ná að ógna sigrinum að ráði.

Leikurinn fór nokkuð jafnt af stað og var staðan 5-5 eftir rúmlega sjö mínútna leik. Afturelding tók hins vegar öll völd á vellinum í kjölfarið og skoraði átta mörk gegn tveimur mörkum Þórsara á næstu tíu mínútum. Staðan var þá orðin 13-7 fyrir heimamenn.

Afturelding hélt áfram að bæta í forskotið og komst í 19-13 þegar rúmar 23 mínútur voru liðnar. Heimamenn gáfu ekkert eftir á lokakafla fyrri hálfleiks og leiddu með sex mörkum, 23-17, þegar flautað var til leikhlés.

Þórsarar komu mun ákveðnari til leiks í síðari hálfleik og náðu smám saman að vinna niður forskot heimamanna. Eftir rúmlega 34 mínútna leik var staðan 24-20 og gestirnir komnir aftur inn í leikinn.

Afturelding svaraði hins vegar með góðum kafla og komst í 31-24 þegar 46 mínútur voru liðnar. Þórsarar neituðu þó að gefast upp og náðu að minnka muninn í þrjú mörk, 32-29, þegar rúmar ellefu mínútur voru eftir.

Heimamenn héldu haus á lokakaflanum og náðu aftur fimm marka forskoti, 35-30. Þórsarar héldu áfram að berjast en komust ekki nær en fjórum mörkum á lokamínútunum. Lokatölur urðu 38-34 fyrir Aftureldingu.

Oscar Sven Leithoff Lykke var markahæstur Aftureldingar með átta mörk og Árni Bragi Eyjólfsson skoraði sjö. Leó Halldórsson og Stefán Magni Hjartarson bættu við fimm mörkum hvor.

Hjá Þór var Þórður Tandri Ágústsson markahæstur með átta mörk, Hákon Ingi Halldórsson skoraði sex og Bertram Simonsen fimm.

Í marki Aftureldingar varði Einar Baldvin Baldvinsson tíu skot og Sigurjón Bragi Atlason eitt. Nikola Radovanovic varði tíu skot í marki Þórs.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top