Handknattleikssamband Íslands stendur frammi fyrir krefjandi fjárhagsstöðu og hefur þegar þurft að skera niður í landsliðsstarfi sínu. Samkvæmt fréttatilkynningu sambandsins þann 23. október hefur meðal annars verið fækkað í starfsliði yngri landsliða og stuðningur við önnur verkefni dreginn saman vegna fjárskorts. Jafnframt hefur sambandið ekki bolmagn til styrkja utanför Sérsveitarinnar, stuðningsmannasveit íslenska landsliðsins, til Þýskalands í janúar nk., þar sem ætlunin var að styðja við bakið á landsliðinu á komandi Heimsmeistaramóti. Þetta varpar ljósi á þá þætti er varða stuðningsfyrirkomulag í tengslum við afreksíþróttir á Íslandi. Í fyrra var Afreksmiðstöð Íslands sett á laggirnar og stuðningur aukinn við afreksíþróttir. Hins vegar er einskonar tómarúm fyrir hendi sem viðkemur þeim greinum sem þegar hafa náð stöðu meðal þeirra bestu í heiminum. Danski handboltinn í úrvalsflokki Þar má líta til Danmerkur, þar sem ákveðin sérsambönd eru skilgreind sem svokölluð Verdensklasseforbund, þ.e. sérsambönd, sem hafa yfir að ráða landsliðum, pörum eða einstaklingum sem eru á hæsta tindi sinna íþróttagreina; heimsklassa. Sá gæðastimpill leiðir sjálfkrafa til aukins fjárframlags og stuðnings. Spurningin er því hvort íslenskur handbolti, og mögulega fleiri íþróttagreinar, eigi að fá sambærilega „gullhúðun“ eða gæðastimpil og þá ekki sem verðlaun fyrir fortíðina, heldur sem fjárfestingu í því að halda sér meðal þeirra bestu. Íslenskt afreksíþróttakerfi tók stórt skref fram á við í fyrra með stofnun Afreksmiðstöðvar Íslands og nýrri afreksstefnu ÍSÍ og eru sérsambönd nú flokkuð eftir umfangi og árangri afreksstarfs og hægt er að gera samstarfssamninga til allt að fjögurra ára. Hins vegar er vert að velta því upp hvort Ísland eigi að ganga skrefinu lengra og fara dönsku leiðina og taka upp þennan sérstakan úrvalsflokk innan kerfisins fyrir þær íþróttagreinar sem þegar hafa náð fótfestu meðal þeirra bestu í heiminum. Innan Team Danmark (Afreksmiðstöðvar Danmerkur) eru m.a. danska handknattleikssambandið, hjólreiðasamband Danmerkur og Badmintonsamband Danmerkur öll skilgreind sem Verdensklasseforbund. Til þess að komast í þennan svokallaða úrvalsflokk Team Danmark nægir ekki að reka öflugt afreksstarf því hvert sérsamband þarf að geta sýnt fram á viðvarandi árangur á alþjóðlegum vettvangi. Líkt og kom from hér að framanverðu er danska handknattleikssambandið í þessum hæsta skilgreinda úrvalsflokki og er áætlað að danski handboltinn fái á þessu ári um 13,6 milljónir danskra króna frá Team Danmark, jafnvirði um 250 milljóna íslenskra króna, fyrir það eitt að vera skilgreindur sem íþróttagrein sem náð hefur framúrskarandi árangri á alþjóðlegum mótum. Gæðastimpillinn að vera í úrvalsflokki innan Team Danmark veitir þeim íþróttagreinum þar af leiðandi aukið fjármagn og því sterkari stöðu til að viðhalda árangrinum. Veik eiginfjárstaða HSÍ en krafa um toppárangur Þarna liggur jafnframt einn stærsti munurinn á HSÍ og danska handknattleikssambandinu. DanskHåndbold kemur inn í samstarfið við Team Danmark með sterkan tekjugrunn og verulegt eigið fé. Í fjárhagsáætlun DanskHåndbold og Team Danmark fyrir afreksstarfið árið 2026 er gert ráð fyrir útgjöldum upp á 47,3 milljónir danskra króna, eða rúmlega 860 milljónir íslenskra króna. Danska sambandið leggur sjálft fram um 71 prósent upphæðarinnar en Team Danmark um 29 prósent. HSÍ stendur hins vegar á allt öðrum stað. Sambandið hefur verið rekið með tapi undanfarin ár, og er eiginfjárstaðan veik og skuldir verulegar. Samt sem áður heldur það úti umfangsmiklu landsliðsstarfi og reynir með kjafti og klóm að halda Íslandi meðal bestu handboltaþjóða heims. Þess vegna væri vart hægt að yfirfæra danska módelið í óbreyttri mynd yfir í íslenska umhverfið. HSÍ hefur einfaldlega ekki sömu fjárhagslegu burði til að leggja fram stórt mótframlag frá fyrsta degi. Íslensk „gullhúðun” þyrfti því fremur að virka sem uppbyggingarleið. Afburðaárangur gæti tryggt sambandinu stöðu í sérstökum úrvalsflokki innan Afreksmiðstöðvar Íslands og þar með aukna og fyrirsjáanlegri fjármögnun til nokkurra ára. Sú staða gæti síðan hjálpað HSÍ að styrkja reksturinn, byggja upp eigið fé og auka eigin tekjugrunn. Gæðastimpillinn ætti þó fyrst og fremst að vera árangurstengdur og ekki ráðast af stærð bankareikningsins. Eftir því sem sambandið yrði fjárhagslega sterkara mætti endurskoða umfang opinbera stuðningsins án þess að gullhúðunin félli niður. Þannig yrði kerfið bæði verðlaun fyrir framúrskarandi stöðu innan ákveðinnar íþróttagreinar á alþjóðavettvangi og hvati, þar sem árangur styrkir eiginfjárstöðu, sem leiðir af sér sterkari grunnstoðir sem skapar betri aðstæður til að viðhalda árangrinum. Fjárfest í allri afrekskeðjunni Stuðningurinn við danska handknattleikssambandið sem Verdensklasseforbund er ekki eingöngu bundinn við A-landslið karla. Fjármagnið og aðrir þættir renna inn í stærra afrekskerfi sambandsins sem nær bæði til karla- og kvennalandsliða, yngri landsliða, hæfileikamótunar, þróunarhópa og annarra verkefna sem ætlað er að tryggja að Danmörk haldist meðal fremstu handboltaþjóða heims. Þar glittir í mikilvægan þátt í hugmyndafræðinni. Markmiðið er ekki eingöngu að fjármagna næsta stórmót heldur að styrkja alla keðjuna sem liggur frá grasrótinni og upp í A-landsliðin. Þannig verður gæðastimpillinn ekki eingöngu verðlaun fyrir árangur gærdagsins eða dagsins í dag heldur fjárfesting í því að sambærilegur árangur verði mögulegur eftir fimm eða tíu ár. Sama hugsun yrði mikilvæg ef sambærilegur úrvalsflokkur yrði tekinn upp á Íslandi. Aukið fjármagn til HSÍ ætti þá ekki aðeins að renna til A-landsliðsins heldur einnig til yngri landsliða, þjálfunar, hæfileikamótunar, ferðalaga, styrkja, menntunar og annarra verkefna sem gætu t.a.m. falist í að standa straum af kostnaði stuðningsmannasveitarinnar á stórmótum. Staðan á Íslandi Íslenska Afreksmiðstöðin skiptir sérsamböndum nú í Afrekssérsambönd og Verkefnasérsambönd. Til að teljast Afrekssérsamband er nauðsynlegt að sýnt sé fram á reglulega þátttöku á alþjóðlegum mótum, staðfesta afreksstefnu, faglegt starfsumhverfi, markvissa hæfileikamótun. Hvert sérsamband er síðan metið með hliðsjón af árangri undanfarinna fjögurra ára. Árangur á allra hæsta alþjóðlega stigi veitir hins vegar ekki sérstaka stöðu innan kerfisins þó vissulega séu afrekssérsamböndum tryggð hærri styrkir en ella. Styrkfjárhæðirnar eru þó lágar í samanburði við aðrar þjóðir. Enginn sérstakur flokkur er fyrir þau sérsambönd sem hafa þegar náð fótfestu meðal þeirra fremstu í heiminum og sýnt að þau geti haldið þeirri stöðu til lengri tíma. Langsótt er að yfirfæra gæðastimpil í tengslum við "heimsklassa" yfir á skilgreind afrekssérsambönd og þar liggur ákveðinn munur á íslenska og danska kerfinu. Í Danmörku er umbunað meira fyrir árangur. Danir gera jafnframt skýrari greinarmun á öflugu afreksstarfi annars vegar og raunverulegri stöðu sem heimsklassa landslið eða einstaklingur hins vegar. Hvar stendur HSÍ? Ef sambærileg flokkun yrði tekin upp hér á landi væri Handknattleikssamband Íslands væntanlega eitt fyrsta sérsambandið sem kæmi til greina HSÍ heldur úti umfangsmiklu landsliðsstarfi og hefur A-landslið karla um langt skeið verið fastagestur á Heims- og Evrópumeistaramótum og þá gegna íslenskir leikmenn veigamiklum hlutverkum hjá liðum í sterkustu deildum Evrópu. Það þarf ekki að draga dul á þá staðreynd að Íslendingar hafa átt heimsklassa handboltamenn um áratugaskeið. Íslendingar hafa hins vegar ekki sópað að sér verðlaunum á stórmótum með sama hætti og Danir og danska „gullhúðunin“ er háð ströngum skilyrðum. Slíkur gæðastimpill byggist ekki á vinsældum eða árangri einnar kynslóðar, heldur á viðvarandi möguleikum á árangri á allra hæsta stigi og skýrri, trúverðugri langtímasýn. Það væri því alls ekki sjálfgefið að HSÍ uppfyllti skilyrðin fyrir slíka stöðu, og það ætti heldur ekki að vera sjálfgefið. Þarna gæti hins vegar falist öflugt hvatakerfi. Hvati til að ná árangri og halda sér meðal fremstu þjóða en jafnframt hvati til að fjárfesta í innviðum, þjálfun, hæfileikamótun og grasrótinni. Gulrótin gæti verið skýr, þ.e. árangur á allra hæsta stigi tryggði sæti í úrvalsflokknum til ákveðins tíma og gæðastimpilinn “heimsklassi”. Ef Ísland næði topp 5 sæti á heimsmeistaramóti og uppfyllti jafnframt önnur fagleg skilyrði kerfisins gæti HSÍ fengið slíkan gæðastimpil til næstu fjögurra ára. Staðan yrði þó endurmetin reglulega og gæti breyst ef árangur, faglegt starf eða framtíðarhorfur versnuðu verulega. Þannig væri hvatanum viðhaldið. Kæmi síðan annar stór áfangi, til dæmis verðlaun á Evrópumóti ári síðar, mætti endurnýja eða framlengja stöðuna og nýtt fjögurra ára tímabil tæki við. Kerfið yrði þannig ekki aðeins verðlaun fyrir einstakan árangur heldur hvati til að halda sér meðal þeirra bestu. Til þess þyrfti sambandið stöðugt að þróa starfið, byggja upp næstu kynslóð og skapa aðstæður til að endurtaka árangurinn. Úrvalsflokkur af þessu tagi myndi þannig ekki einungis verðlauna árangur sem þegar hefur náðst. Hann gæti einnig skapað skýra stefnu til framtíðar þar sem markmiðið væri ávallt hið sama, þ.e. að halda sér í fremstu röð. Til að halda stöðunni væri því ávallt til staðar hvatinn til að halda áfram að fjárfesta, þróa starfið og skila árangri. Hugmyndafræðin hefur augljósa kosti. Sérstakur úrvalsflokkur fyrir sérsambönd í heimsklassa gæti gert þeim kleift að skipuleggja starf sitt til lengri tíma, ráða fagmenntaða sérfræðinga og byggja markvisst upp næstu kynslóðir. Team Danmark gerir fjögurra ára samstarfssamninga við öll þau sérsambönd sem skilgreind eru í heimsklassa, þótt staða þeirra og stuðningur séu vitaskuld endurmetin reglulega. Íslendingar hafa þegar tekið stór skref í þessa átt með stofnun Afreksmiðstöðvar Íslands og er markmið hennar að skapa íslensku afreksíþróttafólki aðstæður til að skipa sér á bekk með þeim bestu í heiminum. Nú þarf að ákveða hvort ganga eigi skrefinu lengra og skilgreina sérstaklega þær greinar sem þegar hafa náð fótfestu í fremstu röð á heimsvísu og hvort aukið fjármagn og stuðningur eigi að fylgja slíkri stöðu. Í þeirri umræðu verður erfitt að líta fram hjá íslenskum handbolta. Umræðan um sérstakan úrvalsflokk snýst því ekki aðeins um titla eða gæðastimpla. Hún snýst um það hvort Íslendingar eru tilbúnir að leggja á sig að veita afreksíþróttafólki og landsliðum það aðhald sem þau eiga skilið. Að fagna sigrunum Staða HSÍ í dag sýnir hversu viðkvæmt slíkt starf getur verið. Þegar fjárhagslegt svigrúm þrengist er fljótt gripið til niðurskurðar í landsliðsstarfi, sérfræðiteymum og verkefnum sem eiga einmitt að tryggja "útungun" næstu kynslóða. „Gullhúðun“ að danskri fyrirmynd myndi ekki leysa allan fjárhagsvanda HSÍ en hún gæti hins vegar skapað skýrari forgangsröðun, meiri fyrirsjáanleika og sterkari hvata til að halda sér meðal fremstu þjóða heims. Jafnframt má spyrja hvort sanngjarnt sé að HSÍ berjist reglulega í bökkum þegar horft er til þeirrar stöðu sem handboltinn hefur skipað í íslensku samfélagi um áratugaskeið. Engar aðrar íþróttagreinar hafa skapað jafn mörg stórkostleg augnablik sem teljast til sameignar þjóðarinar. Augnablik stórra sigra. Það er deginum ljósara að janúar væri öllu daufari mánuður á Íslandi ef ekki væri fyrir þá staðreynd að A-landsliðið karla hefur svo oft verið að keppa fyrir land og þjóð á stórmótum einmitt þegar skammdegið er hvað svartast. Í því samhengi má einnig færa rök fyrir því að hið opinbera þurfi að líta sér nær. Innanhússíþróttir hafa beðið eftir nýrri þjóðarhöll í áratugi. Laugardalshöll var tekin í notkun árið 1965 og uppfyllir ekki lengur alþjóðlegar kröfur til keppnismannvirkja. Íslensk landslið hafa um árabil leikið þar á grundvelli undanþágu og fyrstu hugmyndirnar um nýja höll ná aftur til ársins 1987. Það eru því rúm 40 ár síðan samtalið um nýja þjóðarhöll hófst og loks núna árið 2026 fékkst loks endanlega staðfest niðurstaða. Ný þjóðarhöll mun rísa. En hversu margar kynslóðir fóru á mis við þá aðstöðu sem sambærilegar stórþjóðir í handbolta hafa lengi talið sjálfsagða. Þegar rætt er um hvort HSÍ eigi að gera betur í rekstri sínum eða afla meiri eigin tekna er því sanngjarnt að spyrja einnig hvað íslenska ríkið og hið opinbera hafi gert til að skapa þeim íþróttum sem standa fremst nauðsynlegar aðstæður. Ef Íslendingar ætla sér áfram að standa meðal fremstu handboltaþjóða heims þarf fjárfestingin að ná lengra en inn fyrir veggi HSÍ. Hún þarf einnig að birtast í afrekskerfinu, stefnumótuninni og þeim innviðum sem landsliðin eiga að byggja starf sitt á. Þar verður „gullhúðunin“ að einhverju meira en skilgreiningu eða gæðastimpli. Ráðherrar hafa í gegnum tíðina gjarnan tekið virkan þátt í fögnuði þegar íslensk landslið vinna stóra sigra. Það er skiljanlegt; slík augnablik tilheyra allri þjóðinni. En þá er líka eðlilegt að spyrja hvort stjórnvöld eigi ekki að axla stærri hlut þegar kemur að því að skapa aðstæðurnar sem gera þessi augnablik möguleg. Það væri eitthvað sérstaklega sannfærandi við það ef ráðherra stæði næst á sviði og fagnaði stórum handboltasigri vitandi að hið opinbera hefði ekki aðeins baðað sig í ljóma árangursins, heldur einnig tekið raunverulegan þátt í að byggja hann upp. Þá væri fögnuðurinn ekki aðeins táknrænn. Hann væri einnig staðfesting á því að stjórnvöld hefðu lagt sitt af mörkum til að skapa þær aðstæður sem árangurinn byggðist á.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.