Þrjú lið jöfn á toppum í Svíþjóð
Eyjólfur Garðarsson)

Það var spilað í bæði Danmörku og Svíþjóð í dag en þrjú lið eru jöfn í efsta sæti sænsku deildarinnar eftir leiki dags, þar af eru tvö Íslendingalið.

Við byrjum í Karlskrona en þar fór fram Íslendinga- og nágrannaslagur þegar heimamenn tóku á móti Kristianstad. Leikurinn var bráðfjörugur og gríðarlega spennandi en gestirnir reyndust sterkari í lokin og unnu góðan tveggja marka sigur, 28-30. Besti maður vallarins var hinsvegar í liði heimamanna en Arnór Viðarsson átti frábæran leik í dag, hann skoraði ellefu mörk úr fimmtán skotum og gaf þrjár stoðsendingar að auki.

Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði fimm mörk úr átta skotum og gaf eina stoðsendingu fyrir gestina á meðan Andri Erlingsson skoraði skoraði tvö mörk úr þremur skotum, gaf sex stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki. Baldur Fritz Bjarnason bætti við þremur mörkum úr fimm skotum, þar af eitt úr víti og Ólafur Guðmundsson skoraði ekki en gaf eina stoðsendingu. Kristianstad er eitt þriggja liða með tíu stig á toppi deildarinnar.

Annað lið sem er einnig á toppnum með tíu stig eru Sävehof sem unnu nauman og góðan útisigur á Skånela, 29-30. Birgir Steinn Jónsson skoraði eitt mark úr einu skoti og fékk eina brottvísun að auki. Sävehof eru eina liðið sem hefur ekki tapað stigi hingað til.

Þriðja liðið á toppnum eru Malmö en þeir unnu Íslendingalið Amo í miklum markaleik á útivelli í dag, 33-40. Arnar Birkir Hálfdánsson átti flottan leik fyrir heimamenn og skoraði sjö mörk úr tíu skotum og gaf fimm stoðsendingar að auki. Amo sitja í áttunda sæti deildarinnar, þremur stigum frá toppliðunum.

Í Danmörku voru þrjú Íslendingalið í eldlínunni í dag en Ringsted tók á móti efsta liði deildarinnar, GOG en úr varð hörkuleikur þar sem gestirnir unnu að lokum nauman tveggja marka sigur, 26-28. Ísak Gústafsson klikkaði á eina skoti sínu í leiknum og fékk eina brottvísun í liði heimamanna sem sitja áfram í næstneðsta sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig.

Í Skanderborg fór fram Íslendingaslagur þegar heimamenn tóku á móti TTH Holstebro. Kristján Örn Kristjánsson, Donni hafði hægt um sig í liði heimamanna og skoraði aðeins eitt mark úr þremur skotum og gaf eina stoðsendingu að auki en það kom ekki að sök því Skanderborg vann fjögurra marka sigur á gestunum, 31-27. Í liði gestanna skoraði Jóhannes Berg Andrason þrjú mörk úr fjórum skotum en Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði ekki að þessu sinni.

Skanderborg eru í sjöunda sæti deildarinnar með fjórtán stig ásamt þremur öðrum liðum og eru aðeins stigi á eftir þriðja sætinu. Holstebro eru í tíunda sæti deildarinnar og eru sex stigum frá topp átta.

Úrslit dagsins:

Karlskrona 28-30 Kristianstad

Skånela 29-30 Sävehof

Amo 33-40 Malmö

Ringsted 26-28 GOG

Skanderborg 31-27 TTH Holstebro

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top