Ortega tjáir sig um samkeppnina milli Viktors og Hernández
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Carlos Ortega, þjálfari Barcelona, hefur tjáð sig um markvarðaval sitt eftir 40-34 sigur liðsins gegn Montpellier í Meistaradeild Evrópu í vikunni. Viktor Gísli Hallgrímsson átti frábæra innkomu í leiknum og varði 13 skot, en það var Sergey Hernández sem fékk tækifærið í byrjunarliðinu.

Mikil samkeppni er um markvarðastöðuna hjá Barcelona þar sem Viktor Gísli Hallgrímsson og Sergey Hernández berjast um spilatímann.

Í leiknum gegn Montpellier kom Viktor Gísli inn á undir lok fyrri hálfleiks og átti stórleik. Hann varði 13 skot og var með 43% markvörslu.

Þrátt fyrir frammistöðu Íslendingsins var það Hernández sem byrjaði leikinn og eftir leikinn útskýrði Carlos Ortega ákvörðun sína.

Ortega viðurkenndi að þjálfarateymið hefði verið í vafa um hvor markvörðurinn ætti að byrja leikinn en að á endanum hefði verið ákveðið að treysta Hernández.

„Viktor vill spila og hann sagði okkur það á einum tímapunkti. En það er ég sem ákveð hver spilar og hver ekki. Stundum hef ég rétt fyrir mér og stundum get ég haft rangt fyrir mér,“ sagði Ortega í samtali við Mundo Deportivo.

Ortega hrósaði einnig Viktori Gísla fyrir frammistöðu hans á æfingum að undanförnu.

Að sögn þjálfarans hefur íslenski landsliðsmarkvörðurinn æft á mjög háu stigi síðustu tvær vikurnar.

Ortega telur að frammistaða Viktors gegn Montpellier hafi sýnt að hann sé tilbúinn að axla ábyrgð þegar tækifærið gefst.

Fram undan er krefjandi leikjadagskrá hjá Barcelona. Í Meistaradeild Evrópu bíða meðal annars leikir gegn GOG, Magdeburg, Kielce og Sporting.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top