Blær skoraði eitt í óvæntu tapi
Tom Weller / AFP

Blær Hinriksson og félagar í Leipzig töpuðu fyrir Dessauer, 36–33, á útivelli í þýsku B-deildinni í dag. Blær skoraði eitt mark í leiknum en Leipzig hafði unnið þrjá deildarleiki í röð fyrir viðureignina. 

Heimamenn byrjuðu af miklum krafti og komust í 10–3 eftir tæplega ellefu mínútna leik. Leipzig náði að vinna sig inn í leikinn og var þremur mörkum undir í hálfleik, 20–17.

Leipzig jafnaði metin í 20–20 og komst síðan yfir, 22–21, þegar um tuttugu mínútur voru eftir. Heimamenn náðu hins vegar forystunni á ný og reyndust sterkari á lokakaflanum. 

Staffan Peter var markahæstur hjá Leipzig með sjö mörk en Alen Hadzimuhamedovic skoraði tólf mörk fyrir Dessauer. Philip Ambrosius átti jafnframt góðan leik í marki heimamanna og varði sextán skot.

Þetta var annað tap Leipzig í deildinni á tímabilinu en liðið er með fjórtán stig eftir níu leiki.

Adam Thorstensen, markvörður Lübeck-Schwartau, var hins vegar í sigurliði þegar liðið vann ellefu marka stórsigur á Ludwigshafen á heimavelli, 28–17. Lübeck-Schwartau var með sex marka forskot í hálfleik, 14–8, og bætti við það í síðari hálfleik.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top