Arnór Freyr stórkostlegur í endurkomu sinni
Sævar Jónasson)

ÍR heldur áfram sigurgöngu sinni í Grill 66-deild karla en liðið vann öruggan tíu marka sigur á Fjölni, 33-23, í sjöundu umferð deildarinnar í dag. ÍR hefur þar með unnið alla sjö leiki sína á tímabilinu og trónir á toppi deildarinnar með fullt hús stiga.

Það vakti athygli að Arnór Freyr Stefánsson tók fram skóna og stóð á milli stanganna hjá ÍR í leiknum. Arnór Freyr átti stórleik í marki heimamanna og varði alls 21 skot.

Fjölnismenn byrjuðu leikinn betur og komust í 5-0 áður en ÍR-ingar náðu að koma sér inn í leikinn. Heimamenn unnu sig smám saman inn í leikinn og leiddu með einu marki í hálfleik, 11-10.

Í síðari hálfleik tóku ÍR-ingar hins vegar öll völd á vellinum. Heimamenn juku forskot sitt jafnt og þétt og voru komnir með tíu marka forskot undir lok leiks. Lokatölur urðu 33-23, ÍR í vil.

Bernard Kristján Owusu Darkoh var markahæstur í liði ÍR með tíu mörk. Róbert Snær Örvarsson skoraði sex mörk og Viktor Freyr Viðarsson bætti við fimm mörkum.

Hjá Fjölni voru Heiðmar Örn Björgvinsson, Óli Fannar Pedersen og Þorleifur Rafn Aðalsteinsson markahæstir með fjögur mörk hver.

ÍR er á toppi Grill 66-deildarinnar með 14 stig eftir sjö leiki. Grótta er í öðru sæti með 12 stig eftir sex leiki og Selfoss 2 í þriðja sæti með 12 stig eftir sjö leiki.

Fjölnir situr hins vegar í sjöunda sæti deildarinnar með fimm stig eftir sjö leiki.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top