Sex leikmenn Fram á sjúkralistanum
J.L.Long

Lítið sem ekkert hefur gengið í stigasöfnun Fram í Olís-deild karla undanfarnar vikur eftir afar jákvæða byrjun á tímabilinu. Meiðslavandræði hafa sett stórt strik í reikninginn hjá liðinu en sex leikmenn vantaði í leikmannahóp Fram í síðasta leik gegn Haukum sem tapaðist sannfærandi.

Framarar hófu tímabilið af krafti og unnu fyrstu tvo leiki sína gegn Þór og Val. Spilamennska liðsins gaf góð fyrirheit en síðan þá hefur heldur betur hallað undan fæti í Úlfarsárdalnum.

Fram hefur tapað fimm leikjum í röð í Olís-deildinni og er auk þess úr leik í Powerade-bikarnum eftir tap gegn FH í 16-liða úrslitum keppninnar.

Varnarleikur liðsins hefur verið mikið áhyggjuefni en Fram hefur fengið rúmlega 37 mörk að meðaltali á sig í leik í Olís-deildinni á tímabilinu.

Meiðslavandræði hafa sett svip sinn á tímabilið hjá Fram, rétt eins og í upphafi síðasta tímabils. Í síðasta leik liðsins gegn Haukum vantaði sex leikmenn vegna meiðsla og virðist meiðslasaga félagsins engan endi ætla að taka.

Handkastið hafði samband við Einar Jónsson, þjálfara Fram, og fékk stöðuna á þeim sex leikmönnum sem voru fjarverandi í síðasta leik.

Viktor Sigurðsson handarbrotnaði fyrr á tímabilinu og hefur verið frá keppni síðan. Einar segir að Viktor verði örugglega klár eftir landsleikjahléið. Hann fer í læknisskoðun í næstu viku og möguleiki er á að hann verði með í þarnæsta leik, þó það sé talið ólíklegt en Fram mætir Víking í síðasta leik fyrir landsliðspásuna.

Dánjal Ragnarsson glímir við afleiðingar höfuðhöggs sem hann varð fyrir í vinnunni. Einar segist ekki hafa hugmynd um hvenær Dánjal geti snúið aftur á völlinn og segir stöðuna ekki líta vel út eins og er.

Vonir standa til að línumaðurinn, Dagur Fannar Möller  verði klár í næstu viku og möguleiki er á að hann geti tekið þátt í næsta leik liðsins gegn Selfossi.

Varnarmaðurinn, Erlendur Guðmundsson hefur ekkert leikið með Fram á tímabilinu vegna bakmeiðsla. Hann hefur glímt við beinbjúg og síðar kom í ljós að eldri meiðsli höfðu tekið sig upp að nýju. Erlendur er nú í hvíld og verður ekki með liðinu fyrr en eftir áramót.

Marel Baldvinsson missteig sig gegn FH á dögunum. Einar vonast til þess að Marel verði klár í næsta leik. Þá glímir Þorsteinn Gauti við meiðsli á hæl og gerir Einar ekki ráð fyrir honum í næstu tveimur leikjum. Stefnt er að því að hann snúi aftur eftir landsleikjahléið.

Fram á tvo leiki eftir áður en landsleikjahléið tekur við og ljóst að mikið er undir hjá liðinu. Framarar heimsækja botnlið Selfoss í næstu umferð áður en nýliðar Víkings mæta í Úlfarsárdalinn í síðasta leik liðsins fyrir hlé.

Fram situr í 11. sæti Olís-deildarinnar með fjögur stig eftir sjö umferðir, þremur stigum meira en Selfoss sem rekur lestina. Það er því mikið í húfi fyrir Framara í næstu tveimur leikjum, ekki síst í ljósi þess að liðið hefur tapað fimm deildarleikjum í röð og þarf nauðsynlega að snúa gengi sínu við.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top