Erlingur Richardsson hefur farið frábærlega af stað sem þjálfari þýska handknattleiksliðsins GWD Minden en liðið hefur nú unnið fjóra leiki í röð undir stjórn íslenska þjálfarans. Minden vann sannfærandi níu marka útisigur á Coburg í gærkvöldi, 33-24, eftir að hafa verið fimm mörkum yfir í hálfleik, 16-11. Erlingur tók við þjálfun Minden á dögunum og hefur heldur betur tekist að snúa gengi liðsins við. Minden hefur unnið alla fjóra leiki sína síðan hann tók við stjórnartaumunum og virðist liðið vera að finna taktinn undir stjórn Íslendingsins. Varnarleikur Minden var sérstaklega öflugur gegn Coburg og markvörðurinn Malte Semisch átti góðan leik. Gestirnir náðu mest tíu marka forskoti og var sigurinn aldrei í teljandi hættu á lokakaflanum. Sonur Erlings, Elmar Erlingsson þurfti hinsvegar að sætta sig við tap í sömu deild í gær þegar Nordhorn-Lingen tapaði á útivelli gegn Potsdam 31-25. Elmar var markahæstur í liði Nordhorn-Lingen með sex mörk en liðið hefur aðeins sótt í eitt stig í síðustu fjórum leikjum liðsins. Ferndorf tapaði síðan gegn Elbflorenz 28-35 á heimavelli en Elbflorenz er á toppi deildarinnar með 16 stig. Leipzig er í 2.sæti með 14 stig en á leik til góða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.