Hefur skorað 77 mörk úr 93 skotum
Baldur Þorgilsson

Sérfræðingurinn fór fögrum orðum um frammistöðu Gunnars Róbertssonar, leikmanns Vals, í nýjasta þætti Handkastsins. Gunnar er markahæstur í Olís-deild karla með 77 mörk og hefur skorað úr um 83% skota sinna.

Gunnar, sem er aðeins 18 ára, hefur skorað mörkin úr 93 skotum. Sérfræðingurinn vakti athygli á því hversu óvenjuleg slík nýting væri hjá skyttu.

Gunnar verður í eldlínunni í kvöld þegar 7.umferð Olís-deildarinnar lýkur þegar Valur tekur á móti ÍBV í Valsheimilinu.

„Markahæsti leikmaður deildarinnar er Gunnar Róbertsson með 77 mörk. Hann er með 83% skotnýtingu. Þetta er fáheyrt. Ef þú ert með yfir 50% skotnýtingu sem skytta þá ertu sáttur,“ sagði Sérfræðingurinn.

Til samanburðar nefndi hann Ísak Loga Einarsson, sem er næstmarkahæstur með 64 mörk og 57% skotnýtingu.

„Gunnar er með 83% skotnýtingu, þetta er galið. Hann hefur skorað 77 mörk úr 93 skotum, hann hefur klikkað á 16 skotum og einu vítaskoti af 24.“

Það er ekki aðeins í Olís-deildinni sem Gunnar hefur látið að sér kveða en Sérfræðingurinn benti jafnframt á árangur hans með Val í Evrópudeildinni.

„Hann er 18 ára og fimmti markahæsti leikmaður Evrópudeildarinnar í þokkabót.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top