Þátttaka Hafdísar Renötudóttur í fyrri vináttulandsleik Íslands og Póllands vakti spurningar í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins. Hafdís hefur glímt við meiðsli undanfarnar vikur og töldu þáttastjórnendur mikilvægara að hún næði sér að fullu fyrir komandi stórmót. Ísland vann þriggja marka sigur, 35–32, í Katowice í gær eftir að hafa verið einu marki undir í hálfleik, 17–16. Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst með ellefu mörk en þrír markverðir komu við sögu hjá íslenska liðinu. Leikurinn fór fram fyrir luktum dyrum og var hvergi sýndur. Umræðan í þættinum byggðist því fyrst og fremst á tölfræði leiksins. „Við vorum ekki með nema átta varða bolta,“ sagði Stymmi klippari. Sérfræðingurinn vakti þá athygli á því að Hafdís hefði staðið í marki Íslands þrátt fyrir meiðslin sem hafa hrjáð hana. „Ég sá að Hafdís var í markinu hjá Íslandi. Hún hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur og lék gegn Gróttu um síðustu helgi,“ sagði Sérfræðingurinn. „Anton Rúnarsson var örugglega helvíti ánægður að hún hafi verið að spila þennan leik,“ bætti Stymmi klippari kaldhæðinn við og vísaði þar til þjálfara Vals. Sérfræðingurinn hafði sjálfur reiknað með öðru hlutverki fyrir Hafdísi í verkefninu. „Ég hélt einmitt að hún væri bara þarna til að vera með hópnum og vera í meðhöndlun sjúkraþjálfara.“ Stymmi taldi landsliðsþjálfarann Arnar Pétursson þekkja nægilega vel til Hafdísar og því væri óþarfi að láta hana spila við þessar aðstæður. „Hafdís er á svipuðum stað hjá mér og Björgvin Páll er í íslenska karlalandsliðinu. Mér finnst Arnar Pétursson ekkert þurfa að sjá hana spila þessa leiki, þeir vita nákvæmlega hvað þeir fá frá henni. Mér þætti mikilvægast að ná henni heilli fyrir stórmótið frekar en að vera að spila einhverja æfingaleiki,“ sagði Stymmi klippari. Kristinn Björgúlfsson tók í sama streng. „Mér finnst mjög skrítið að hún hafi verið að spila þennan leik þar sem hún hefur varla spilað með Val síðustu vikur.“ Ísland og Pólland mætast aftur á morgun klukkan 16:00. Sá leikur verður sýndur í beinni útsendingu á Livey.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.