Sérsveitin, stuðningsmannasveit íslenska karlalandsliðsins mun ekki ferðast til Þýskalands til að styðja íslenska landsliðið á heimsmeistaramótinu sem fram fer í janúar á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu sem Sérsveitin birti á Facebook. Stuðningsmannasveitin hefur verið áberandi á stórmótum íslensku landsliðanna í gegnum tíðina og sett mikinn svip á stuðninginn við íslenska liðið í stúkunni. Fjarvera Sérsveitarinnar verður því talsverð breyting fyrir íslenska landsliðið, sem naut öflugs stuðnings sveitarinnar á síðasta stórmóti í Svíþjóð þar sem Ísland hafnaði í fjórða sæti. Sérsveitin lét vel í sér heyra bæði í riðlakeppninni í Kristianstad og milliriðlakeppninni í Malmö. Í tilkynningu Sérsveitarinnar kemur fram að kostnaður og miðamál séu ástæður þess að stuðningsmannasveitin hefur ákveðið að sitja heima að þessu sinni. „Þetta er ákvörðun sem við tókum ekki af léttúð, en vegna kostnaðar og miðamála þá sitjum við heima þetta árið,“ segir í tilkynningunni en þess má til gamans geta að Sérfræðingurinn verður ekki meðal áhorfenda á heimsmeistaramótinu í janúar. Þó ekki vegna kostnaðar eða miðamála. Þrátt fyrir að Sérsveitin verði ekki á meðal stuðningsmanna Íslands í Þýskalandi ætlar hún að halda áfram að styðja landsliðið úr fjarlægð. „Þó að við verðum ekki á staðnum í janúar munum við að sjálfsögðu styðja strákana að heiman og hvetjum ykkur öll til að gera slíkt hið sama. Áfram Ísland!“ Ísland hefur leik á heimsmeistaramótinu þann 15. janúar en liðið leikur í H-riðli ásamt Norður-Makedóníu, Barein og Japan. Riðill Íslands verður leikinn í Magdeburg í Þýskalandi.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.