Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins, skilur umræðuna um hversu snemma félagaskipti handboltamanna eru ákveðin og tilkynnt. Hann sér þó enga einfalda lausn á málinu og á ekki von á breytingum á næstunni. Félagaskipti leikmanna erlendis hafa verið mikið til umræðu síðustu daga og vikur. Snorri Steinn telur fjárhagslegt umhverfi handboltans eiga stóran þátt í því hvernig mál hafa þróast. „Ég hef farið fram og til baka með þetta. Auðvitað er þetta smá sérstakt og ég held að við þurfum að fara aðeins dýpra í þetta. Þetta byrjar væntanlega út af því að í handboltanum eru ekki til þeir peningar sem þarf til að kaupa samningsbundna leikmenn. Þegar þú ert að berjast um bestu bitana þá þarftu að vera spot-on og tímanlega. Þannig hefur þetta væntanlega þróast.“ Snorri Steinn telur umræðuna um Johannes Golla ekki segja alla söguna. Golla hafi sjálfur vísað til persónulegra ástæðna fyrir því að vilja snúa aftur til Flensburg. „Auðvitað springur þetta með Johannes Golla-málinu en mér finnst það smá kjánalegt. Þar er klárlega ekki öll sagan sögð,“ segir Snorri Steinn. Hann bendir jafnframt á að fleiri leikmenn geti lent í þeirri stöðu að mæta verðandi félagi sínu í mikilvægum leikjum. „Það sem gleymist er að Dika Mem spilaði úrslitaleikinn í Meistaradeildinni á móti liði sem hann er að fara í, ekki einu sinni eftir leikinn heldur eftir ár. Við getum nefnt Simon Pytlick hjá Flensburg. Hann verður væntanlega í þeirri stöðu í vor að Flensburg og Füchse Berlín gætu verið að berjast um Meistaradeildarsæti.“ Snorri bendir þó á að sama staða gæti komið upp þótt Pytlick semdi ekki við Füchse Berlín fyrr en í febrúar. Honum fannst Bennet Wiegert, þjálfari Magdeburg, nálgast umræðuna vel. Félagið hafi sjálft verið skipulagt á leikmannamarkaðnum og viljað ganga tímanlega frá sínum málum. „Síðan hefur hann líka sagt að þegar leikmenn eru að fara, eins og Elvar Örn er að fara núna eftir tímabilið, hafi hann engar áhyggjur af því að hann leggi sig ekki hundrað prósent fram. En ég skil vangavelturnar og að þetta gæti skapað aðstæður sem eru skrítnar.“ Snorri Steinn segir einnig þurfa að taka mið af hagsmunum leikmannanna. Launakjör handboltamanna séu með þeim hætti að margir geti ekki beðið lengi eftir að fá framtíð sína á hreint. „Þá koma upp bílamál og húsaleigudæmi þar sem þú þarft að segja upp húsaleigu. Ég þekki það sjálfur, það gæti orðið helvíti dýrt að sitja uppi með tvær húsaleigur fyrir handboltamann.“ Spurður hvort hann telji eitthvað muni breytast segist Snorri Steinn ekki eiga von á því á næstunni. „Ég veit ekki hver ætti að gera það. Á Bundesligan að setja sínar reglur og væru þá önnur lönd með sérreglur? Ég veit ekki hvort við séum með nægilega sterk leikmannahagsmunasamtök sem geta tekið svona ákvörðun. Ég er ekki endilega að sjá þetta breytast á næstu misserum.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.