Baldur með 11 mörk gegn Sporting – Viktor Gísli öflugur
Guðmundur Svansson

Fimm leikir fóru fram í Meistaradeild karla í handbolta í kvöld. Barcelona og Magdeburg héldu áfram sigurgöngu sinni, Sporting vann Kristianstad í markaleik og GOG tryggði sér sæti í milliriðlum með jafntefli í Ungverjalandi.

Baldur Fritz Bjarnason fór á kostum í liði Kristianstad gegn Orra Frey Þorkelssyni og samherjum hans í Sporting.

Viktor Gísli lokaði á Montpellier

Barcelona 40-34 Montpellier (20-18)

Barcelona vann sex marka heimasigur á Montpellier, 40-34, og hefur unnið alla fimm leiki sína í riðlinum. Franska liðið veitti Börsungum harða keppni í fyrri hálfleik en heimamenn náðu undirtökunum eftir hlé.

Viktor Gísli Hallgrímsson átti frábæra innkomu í mark Barcelona. Hann kom inn undir lok fyrri hálfleiks, varði fyrstu þrjú skotin sem hann fékk á sig og lauk leik með 13 varin skot og 43% markvörslu. Montpellier á ekki lengur möguleika á sæti í milliriðlum.

Baldur Fritz með ellefu mörk í markaveislu

Sporting 42-40 Kristianstad (20-18)

Sporting vann tveggja marka sigur á Kristianstad í sannkölluðum markaleik í Lissabon. Portúgalska liðið leiddi með tveimur mörkum í hálfleik og sami munur var á liðunum í leikslok. Sporting er efst í D-riðli með níu stig en Kristianstad er án stiga.

Baldur Fritz Bjarnason fór á kostum hjá Kristianstad og skoraði ellefu mörk úr þrettán skotum. Einar Bragi Aðalsteinsson skoraði þrjú mörk, Ólafur Guðmundsson tvö og Andri Erlingsson eitt. Orri Freyr Þorkelsson var ekki meðal markaskorara Sporting. 

Magdeburg áfram með fullt hús

Kolstad 32-35 Magdeburg (15-15)

Magdeburg sótti tveggja stiga feng til Noregs með þriggja marka sigri á Kolstad. Jafnt var í hálfleik, 15-15, en þýska liðið náði yfirhöndinni eftir hlé og hefur unnið alla fimm leiki sína í riðlinum.

Philipp Weber var markahæstur Magdeburg með ellefu mörk. Lukas Mertens skoraði átta en Ómar Ingi Magnússon og Elvar Örn Jónsson tvö mörk hvor. Gísli Þorgeir Kristjánsson var ekki meðal markaskorara. 

Reynir Þór með fimm í mikilvægum sigri

Melsungen 28-26 Wisla Plock (15-14)

Melsungen vann mikilvægan tveggja marka heimasigur á Wisla Plock og hélt möguleikum sínum á sæti í milliriðlum á lífi. Heimamenn voru marki yfir í hálfleik, 15-14, og náðu þriggja marka forskoti í síðari hálfleik sem gestunum tókst ekki að vinna upp.

Erik Balenciaga og Aaron Mensing voru markahæstir Melsungen með sex mörk hvor. Reynir Þór Stefánsson kom næstur með fimm mörk. Frederik Bjerre og Sergei Kosorotov skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Wisla Plock. 

Jafntefli dugði GOG áfram

Pick Szeged 33-33 GOG (17-20)

GOG tryggði sér sæti í milliriðlum með jafntefli á útivelli gegn Pick Szeged, 33-33. Danska liðið var þremur mörkum yfir í hálfleik og hafði lengi undirtökin en heimamenn komu til baka og komust yfir, 32-31. Spennandi lokakafli skilaði liðunum síðan einu stigi hvoru.

Hjalte Lykke var markahæstur GOG með átta mörk en Óli Mittún og Manuel Zehnder skoruðu fimm hvor. Mario Sostaric skoraði níu mörk fyrir Szeged og Magnus Röd sex. Úrslitin þýða að Szeged heldur áfram í Evrópudeildinni. 

Úrslit kvöldsins

Melsungen 28-26 Wisla Plock

Pick Szeged 33-33 GOG

Sporting 42-40 Kristianstad

Barcelona 40-34 Montpellier

Kolstad 32-35 Magdeburg

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top