Tveir leikir fóru fram í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en meðal annars voru Arnór Viðarsson og liðsfélagar hans í heimsókn hjá Skånela. Önnereds unnu nauman heimasigur á Ystad, 30-29 en Ystad hefði getað jafnað toppliðin að stigum með sigri en sigurinn var bráðnauðsynlegur fyrir heimamenn sem fóru upp úr næstneðsta sætinu og eru núna í tólfta sætinu. Karlskrona mætti Skånela á útivelli á sama tíma en Karlskrona gat með sigri komið sér upp í topp 8 og nálgast toppliðin en heimamenn voru aðeins stigi frá neðsta sætinu og þurftu á sigri að halda. Gestirnir voru öflugri í byrjun og voru þremur mörkum yfir í hálfleik, 15-18. Heimamenn reyndu að minnka muninn en Karlskrona voru alltaf með svör við þeirra áhlaupi og þegar korter var eftir komust gestirnir í sex marka forystu og eftir það var aldrei spurning hvar sigurinn myndi enda, Karlskrona unnu að lokum með þremur mörkum, 30-33. Arnór Viðarsson skoraði fjögur mörk úr átta skotum og gaf þrjár stoðsendingar fyrir gestina en þeir sitja núna í áttunda sæti en deildin er gríðarlega jöfn, aðeins tvö stig eru niður í tólfta sætið og aðeins tvö stig eru upp í fyrsta sætið. Úrslit kvöldsins: Önnereds 30-29 Ystad Skånela 30-33 Karlskrona

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.