Íslenskur sigur í Póllandi
MARIJAN MURAT / dpa Picture-Alliance via AFP)

Íslenska kvennalandsliðið mætti Pólverjum ytra í dag en leikurinn fór fram í Katowice klukkan 16.

Lítið er að finna um upplýsingar um leikinn en samkvæmt fésbókarsíðu HSÍ leiddu heimakonur í hálfleik með einu marki, 17-16 en í síðari hálfleiknum tókst íslenska liðinu að snúa leiknum sér í hag og vann á endanum góðan þriggja marka sigur, 32-35.

Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst hjá íslenska liðinu en hún skoraði ellefu mörk, þar á eftir komu Lilja Ágústsdóttir og Sonja Lind Sigsteinsdóttir en þær skoruðu báðar fjögur mörk og á eftir þeim voru þær Thea Imani Sturludóttir og Sandra Erlingsdóttir með þrjú mörk hvor.

Liðin mætast aftur næstkomandi laugardag klukkan 16:00 en að þessu sinni verður leikurinn í beinni útsendingu á Livey Sport.

Úrslit dagsins:

Pólland 32-35 Ísland

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top