Norskur landsliðsmaður orðaður við Kiel
LISELOTTE SABROE /AFP

Norski landsliðsmaðurinn Patrick Helland Anderson, leikmaður danska stórliðsins Álaborgar, er orðaður við þýska stórliðið THW Kiel. Hinn 21 árs gamli Norðmaður gæti gengið til liðs við Kiel næsta sumar, þrátt fyrir að vera samningsbundinn Álaborg til ársins 2028.

Það er danski miðillinn Rygtebørs sem greinir frá.

Anderson gekk til liðs við Álaborg frá norska liðinu Elverum síðasta sumar og hefur vakið athygli fyrir frammistöðu sína í dönsku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu.

Verði af félagaskiptunum myndi Anderson sameinast sínum gamla þjálfara, Børge Lund, sem tók við Kiel næsta sumar. Lund þjálfaði Anderson hjá Elverum og saman urðu þeir Noregsmeistarar árið 2025.

Anderson gæti komið í stað norska landsliðsmannsins Haralds Reinkind, en samningur hans við Kiel rennur út næsta sumar. Ekki liggur þó fyrir hvort Reinkind yfirgefi félagið.

Anderson var valinn besta hægri skytta Evrópumóts U20 ára landsliða árið 2024 og hefur síðan fest sig í sessi í norska A-landsliðinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top