Íslenska kvennalandsliðið leikur tvo vináttulandsleiki gegn Póllandi í Katowice í þessari viku. Fyrri leikurinn fer fram í dag, fimmtudaginn 22. október, en sá síðari á laugardaginn. Báðir leikir hefjast klukkan 16:00 að íslenskum tíma. Leikirnir eru liður í undirbúningi liðsins fyrir Evrópumótið í desember. Þetta er síðasta verkefni hópsins áður en liðið kemur saman í lok nóvember til lokaundirbúnings fyrir mótið. Arnar Pétursson, landsliðsþjálfari, valdi 18 leikmenn í verkefnið. Leikurinn í dag verður fyrir luktum dyrum en HSÍ mun birta stöðu, hálfleikstölur og úrslit á Instagram, Facebook og X. Leikurinn á laugardaginn verður í beinni útsendingu á Livey Sport. Landsliðshópurinn: Markverðir: Hafdís Renötudóttir, Valur (80/5) Aðrir leikmenn: Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín, Thüringer HC (16/11)
Sara Sif Helgadóttir, Haukar (25/0)
Ethel Gyða Bjarnasen, Fram (1/0)
Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (75/104)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Sävehof (37/145)
Elín Rósa Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (42/90)
Elísa Elíasdóttir, Valur (33/33)
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Fram (24/39)
Katrín Tinna Jensdóttir, HH Elite (37/42)
Lilja Ágústsdóttir, Sachsen Zwickau (27/19)
Lovísa Thompson, Benfica (41/75)
Matthildur Lilja Jónsdóttir, ÍR (11/1)
Rakel Oddný Guðmundsdóttir, Haukar (14/16)
Sandra Erlingsdóttir, ÍBV (49/204)
Sara Dögg Hjaltadóttir, ÍR (7/12)
Sonja Lind Sigsteinsdóttir, Haukar (7/2)
Thea Imani Sturludóttir, SCM Craiova (98/224)

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.