Þórsarar fögnuðu langþráðum sigri
Egill Bjarni Friðjónsson

Þór Akureyri vann mikilvægan fimm marka sigur á Stjörnunni, 37-32 í 7.umferð Olís-deildar karla í kvöld. Þórsarar voru marki undir í hálfleik en sneru taflinu við í síðari hálfleik og tryggðu sér að lokum sannfærandi sigur.

Þórsarar byrjuðu leikinn af krafti og komust í 3-0 áður en Stjörnumenn náðu að svara. Gestirnir unnu sig hins vegar jafnt og þétt inn í leikinn og náðu að jafna metin í 6-6. Stjarnan komst í kjölfarið yfir og var leikurinn jafn og spennandi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Liðin skiptust á að hafa forystuna en Þórsarar náðu mest þriggja marka forskoti, 13-10.

Stjörnumenn áttu hins vegar lokaorðið í fyrri hálfleik og fóru með eins marks forskot inn í leikhléið, 17-16.

Stjarnan byrjaði síðari hálfleikinn betur og komst í 18-16 en þá tóku heimamenn við sér. Þórsarar skoruðu fjögur mörk í röð og breyttu stöðunni í 20-18. Þar með voru heimamenn komnir í bílstjórasætið og létu forystuna ekki af hendi það sem eftir lifði leiks.

Þórsarar náðu mest sjö marka forskoti í stöðunni 32-25 en Stjörnumenn náðu að minnka muninn niður í fjögur mörk undir lokin. Heimamenn héldu þó haus og fögnuðu að lokum fimm marka sigri, 37-32.

Bertram Simonsen var markahæstur Þórsara með sjö mörk og Hafþór Már Vignisson skoraði sex. Þeir Mikkel Bak Scheumann Jensen og Þórður Tandri Ágústsson skoruðu fimm mörk hvor.

Nikola Radovanovic átti góðan leik í marki Þórs og varði 15 skot.

Hjá Stjörnunni var Ísak Logi Einarsson langmarkahæstur með ellefu mörk. Matthías Dagur Þorsteinsson og Tandri Már Konráðsson skoruðu fimm mörk hvor.

Sigurður Dan Óskarsson varði tólf skot í marki Stjörnunnar og Róbert Örn Karlsson þrjú.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top