Sandefjord tapaði í baráttunni um annað sætið
Eyjólfur Garðarsson

Tvö Íslendingalið áttu leik í kvöld á Norðurlöndunum, eitt í Noregi og eitt í Svíþjóð. Sandefjord tók á móti Runar þar sem annað sætið var í húfi og í Svíþjóð gat Sävehof tyllt sér á topp deildarinnar.

Sigurjón Guðmundsson átti flottan leik í marki Sandefjord í kvöld en það dugði því miður ekki til sigurs gegn öflugu liði Runar, lokatölur urðu 30-32 fyrir gestina sem eru því í öðru sæti deildarinnar með fjórtán stig, jafnmörg og efsta liðið Elverum á meðan Sandefjord sitja í þriðja sætinu með tíu stig.

Sigurjón varði sextán af þeim fjörtíu og fjórum skotum sem hann fékk á sig eða 36% markvarsla.

Í Svíþjóð komst Sävehof á topp deildarinnar þegar þeir unnu fjórða leik sinn af fjórum. Þeir mættu Hallby á útivelli og unnu gríðarlega þægilegan níu marka sigur, 27-36. Birgir Steinn Jónsson skoraði tvö mörk, gaf eina stoðsendingu og fékk eina brottvísun að auki. Sävehof eru efstir með átta stig rétt eins og Hammarby, Kristianstad og Malmö en öll hin liðin hafa spilað leik eða leiki fleira.

Úrslit kvöldsins:

Sandefjord 30-32 Runar

Hallby 27-36 Sävehof

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top