Bannar stuðningsmanni að mæta á heimaleiki
Attila KISBENEDEK / AFP

Danska úrvalsdeildarliðið Fredericia HK hefur gripið til aðgerða í kjölfar alvarlegs atviks sem átti sér stað í tengslum við útileik liðsins gegn Skanderborg AGF um síðustu helgi. Stuðningsmaður félagsins er grunaður um að hafa ráðist á öryggisvörð sem þurfti að leita á sjúkrahús eftir atvikið.

Atvikið átti sér stað í Ceres Arena í Árósum síðasta sunnudag þegar Fredericia heimsótti Skanderborg AGF í dönsku úrvalsdeildinni.

Starfsmaður fluttur á sjúkrahús eftir ofbeldi á handboltaleik

Samkvæmt dönsku lögreglunni var 58 ára stuðningsmaður Fredericia kærður vegna gruns um ofbeldi gegn öryggisverði. Fredericia hefur nú ákveðið að banna viðkomandi einstaklingi tímabundið að sækja heimaleiki félagsins á meðan lögregla rannsakar málið.

Félagið fundaði jafnframt með stjórn stuðningsmannahópsins HK Ultras og hefur nú verið gert sérstakt samkomulag um samskipti félagsins og stuðningsmannahópsins.

Samkomulagið felur meðal annars í sér að stuðningsmenn verði að virða fyrirmæli öryggisstarfsmanna og mótshaldara, hvort sem um er að ræða heima- eða útileiki. Þá er kveðið á um að brot á reglunum geti leitt til takmarkana á samstarfinu eða þess að því verði alfarið slitið.

Thomas Renneberg-Larsen, framkvæmdastjóri Fredericia, segir að félagið taki málið mjög alvarlega.

„Við höfum átt gott, uppbyggilegt og alvarlegt samtal við stjórn HK Ultras. Við erum sammála um að öflugur stuðningur fylgi ábyrgð og að virðing fyrir reglum og öryggi annarra sé ekki til umræðu,“ segir Renneberg-Larsen.

Hann leggur jafnframt áherslu á að félagið sé ekki að taka afstöðu til sektar viðkomandi einstaklings með tímabundnu banninu.

„Við búum í réttarríki þar sem allir eiga rétt á réttlátri málsmeðferð og engan á að dæma fyrirfram.“

Fredericia hefur á undanförnum árum verið með öflugan stuðningsmannahóp sem hefur vakið athygli fyrir mikla stemningu á leikjum liðsins. Forráðamenn félagsins segja hins vegar að ofbeldi, hótanir og hegðun sem skapi óöryggi verði aldrei liðin í tengslum við handboltaleiki.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top