Alvarlegt atvik átti sér stað í dönsku úrvalsdeildinni á sunnudagskvöldið þegar 69 ára gamall starfsmaður íþróttahússins í Árósum varð fyrir líkamsárás í tengslum við leik Skanderborg AGF og Fredericia. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús og hefur lögreglan handtekið 58 ára gamlan karlmann vegna málsins. Atvikið átti sér stað í Ceres Arena í Árósum þar sem Skanderborg AGF tók á móti Fredericia í dönsku úrvalsdeildinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austur-Jótlandi kom til átaka þegar starfsmaðurinn hafði afskipti af stuðningsmönnum gestaliðsins meðan á leiknum stóð. Lögreglunni barst tilkynning um atvikið um klukkan 21 á sunnudagskvöldið og voru lögreglumenn sendir á vettvang. Þegar lögreglan kom á staðinn var starfsmaðurinn með sjáanlega áverka og var hann í kjölfarið fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Lögreglan handtók 58 ára gamlan karlmann frá Fredericia, sem enn var staddur í íþróttahúsinu, og var hann færður á lögreglustöð til yfirheyrslu. Maðurinn hefur verið kærður fyrir líkamsárás. Bæði Skanderborg AGF og Fredericia hafa fordæmt ofbeldi í tengslum við handboltaleiki. Skanderborg AGF staðfesti að sá sem varð fyrir árásinni væri sjálfboðaliði á vegum félagsins. Lögreglan rannsakar enn nákvæman aðdraganda atviksins og hefur óskað eftir því að vitni gefi sig fram. Málið hefur vakið mikla athygli í dönskum handbolta enda afar óvenjulegt að starfsmaður íþróttahúss verði fyrir líkamsárás í tengslum við leik í efstu deild. Fredericia vann leikinn með tveimur mörkum 29-31 en Kristján Örn Kristjánsson leikur með Skanderborg AGF. Bæði lið eru með tíu stig í dönsku úrvalsdeildinni í 5.-7. sæti deildarinnar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.