Valur tekur á móti ungverska liðinu Tatabánya í þriðju umferð Evrópudeildar karla í kvöld. Hitað var upp fyrir leikinn í nýjasta uppgjörsþætti Handkastsins þar sem þeir Arnar Daði Arnarsson, Einar Ingi Hrafnsson og Ásgeir Jónsson fóru yfir möguleika Vals á að komast áfram úr riðlinum. Valur er með tvö stig eftir fyrstu tvo leikina en Tatabánya er án stiga. Sérfræðingurinn telur að sigur í kvöld gæti komið Valsmönnum í afar góða stöðu í baráttunni um sæti í næstu umferð keppninnar. „Valur er í dauðafæri að koma sér í þá stöðu að fara áfram upp úr riðlinum. Valur er með mikið forskot á Mors-Thy í innbyrðisviðureignum. Vinni Valur þennan leik þá gæti það dugað þeim að vinna einn leik í seinni umferðinni,“ sagði Arnar Daði. Einar Ingi tók undir að möguleikarnir væru sannarlega fyrir hendi, ekki síst ef Valsmenn næðu upp sömu frammistöðu og í stórsigri sínum á danska liðinu Mors-Thy. „Það er tækifæri hjá Val í kvöld en auðvitað er maður litaður af því að Valur pakkaði Dönunum saman á heimavelli og mögulega með óraunhæfar væntingar. En maður getur alveg séð Valsvélina þar sem hraði og markvarsla kikkar inn. Ef það gerist þá má alveg búast við því að Valur vinni þennan leik.“ Sérfræðingurinn hvatti jafnframt handboltaáhugafólk til að fjölmenna á völlinn og styðja við bakið á Valsmönnum í þessum mikilvæga leik. „Það var allt í lagi, ekki góð mæting á fyrsta heimaleik Vals í Evrópudeildinni. Við þurfum að þétta okkur saman og styðja íslensku liðin í Evrópu og sérstaklega núna. Valur er í dauðafæri að fara áfram úr riðlakeppni Evrópudeildarinnar og þetta er tækifærið. Fari illa í þessum leik þá verður þetta erfitt.“ Hann telur að það yrði mikið afrek fyrir þetta unga Valslið að tryggja sér sæti í næstu umferð, ekki síst í ljósi þeirra breytinga sem orðið hafa á leikmannahópnum undanfarin ár. „Það yrði virkilega stórt fyrir deildina hér heima og íslenskan handbolta að fá Val upp úr riðlakeppni Evrópudeildarinnar, miðað við hversu ungt þetta lið er og hvað liðið hefur misst marga leikmenn undanfarin ár. Þetta er ekki sterkasta Valsliðið hingað til en kannski verður Stiven mættur í útsláttarkeppnina?“ sagði Sérfræðingurinn og vísaði þar til Stivens Tobars Valencia. „Hver veit, hann er allavega í stúkunni á leikjum,“ bætti Einar Ingi við.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.