Selfoss og Valur mættust í Powerade bikar karla á Selfossi í kvöld. Valur var með yfirhöndina frá upphafi og náði mest átta marka forskoti í fyrri hálfleik og voru sex mörkum yfir í hálfleik 11-17. Gestirnir gáfu ekkert eftir í síðari hálfleik og lönduðu níu marka sigri 28-37. Atkvæðamesdtur í liði Selfoss var Andri Breki Hjaltason en hann skoraði sjö mörk. Hákon Garri Gestsson og Hannes Höskuldsson skoruðu báðir fjögur og aðrir minna. Atkvæðamestur í liði gestanna var Gunnar Róbertsson en hann skoraði átta mörk. Allan Norðberg skoraði svo sjö mörk og aðrir minna. 

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.