Serbneski landsliðsmarkvörðurinn Vladimir Cupara segist hafa endurheimt ástríðuna fyrir handboltanum eftir að hann gekk til liðs við HBW Balingen-Weilstetten í sumar og hóf þar með leik í þýsku Bundesligunni í fyrsta sinn. Cupara, sem er 32 ára, hefur áður leikið með meðal annars Ademar León, Kielce, Veszprém og Dinamo Búkarest. „Ég forðaðist Bundesliguna að einhverju leyti því ég var svolítið hræddur við allar sögurnar um lítinn frítíma, mikil ferðalög og ótrúlega marga erfiða leiki,“ sagði Cupara í viðtali við Balkan-Handball. „Það er vissulega rétt en nú sé ég eftir því að hafa ekki komið hingað fyrr. Kannski hefði ferillinn minn þróast öðruvísi ef ég hefði tekið einhverjum af þeim góðu tilboðum sem ég fékk fyrir tveimur, þremur eða fjórum árum.“ Cupara segir ákvörðun sína í sumar jafnframt hafa kveikt aftur í ást hans á handboltanum eftir tvö erfið ár. „Ég er algjörlega kominn aftur inn í handboltann og ást mína á íþróttinni. Ég finn aftur fyrir spennunni og ánægjunni.“ Balingen berst fyrir sæti sínu í Bundesligunni en Cupara segist þegar vera ákveðinn í að vera áfram í Þýskalandi. „Ef þeir vilja hafa mig hér mun ég gera allt sem ég get til að vera eins lengi og mögulegt er.“

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.