Ákvað að slá til – Líst vel á hópinn
(Eyjólfur Garðarsson)

Athygli vakti um daginn að Ólafur Brim Stefánsson væri genginn í raðir Harðar frá Ísafirði í annað skipti á ferlinum.

Ólafur Brim lék síðast á Ítalíu en hefur líka leikið í Kuwait, með Gróttu og einnig um stuttan tíma með Fram. Ásamt því að hafa leikið áður með liði Harðar frá árunum 2023-2025 þar sem Ólafur lék 15 leiki með liðinu og skoraði 62 mörk.

Ólafur skoraði 6 mörk í sínum fyrsta leik um síðastliðna helgi og ljóst að hann mun hjálpa liðinu þónokkuð í baráttunni í Grill 66 deildinni.

Ólafur Brim tjáði sig aðeins um félagaskiptin:

"Hörður hafði samband við mig og spurði hvort ég væri til í að koma og hjálpa liðinu. Ég ákvað að slá til og hjálpa þeim í þeim leikjum sem ég get. Ég bý ennþá í Reykjavík og fæ að æfa með liði hér í borginni en svo spila ég bæði heima- og útileiki með Herði eftir því sem ég hef tök á. Liðið er töluvert breytt síðan ég var þarna síðast, en mér líst vel á hópinn og það var gaman að spila fyrsta leikinn með þeim síðasta laugardag. Það var vel tekið á móti mér og ég hlakka til að sjá hvernig tímabilið þróast" sagði nýjasti liðsmaður Harðar frá Ísafirði.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top