Kristianstad tók á móti Alingsås í stórleik í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld en fyrir leikinn munaði tveimur stigum á liðunum. Alingsås voru í efsta sæti deildarinnar ásamt Malmö og Hammarby með sextán stig á meðan meistararnir í Kristianstad voru með tveimur stigum minna, fjórtán stig í sjötta sæti deildarinnar. Sænsku meistararnir léku á alls oddi á heimavelli sínum í kvöld og leiddu með sex mörkum í hálfleik, 19-13. Það kom aldrei til greina hjá heimamönnum að stíga af bensíngjöfinni heldur gáfu þeir bara meira í og unnu á endanum gríðarlega þægilegan og öruggan ellefu marka sigur, 40-29. Einar Bragi Aðalsteinsson átti frábæran leik í liði Kristianstad en hann skoraði þó aðeins fjögur mörk úr fimm skotum en gaf heilar níu stoðsendingar. Andri Erlingsson og Ólafur Guðmundsson voru einnig báðir í leikmannahópi liðsins en komu lítið við sögu í kvöld. Úrslit kvöldsins: Kristianstad 40-29 Alingsås

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.