Þórir segist ætla ögra Snorra og Arnari
Johan Nilsson / TT News Agency / AFP

Þórir Hergeirsson, nýráðinn afreksstjóri HSÍ ætlar ekki eingöngu að vera landsliðsþjálfurum Íslands til stuðnings heldur einnig að ögra þeim og spyrja krefjandi spurninga þegar kemur að undirbúningi og frammistöðu landsliðanna.

Þetta kemur fram í viðtali við Þóri á RÚV í síðustu viku þar sem hann útskýrir nánar hlutverk sitt hjá Handknattleikssambandi Íslands. Þórir hefur tekið við hálfu stöðugildi sem afreksstjóri og mun starfa náið með Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara karla, og Arnari Péturssyni, landsliðsþjálfara kvenna.

Hann segir að hlutverk sitt sé meðal annars að vera faglegur ráðgjafi og umræðufélagi þjálfaranna.

Þórir segir að hann muni verða mun meira viðloðandi A-landsliðin en hann hefur verið undanfarin misseri. Til þess að geta veitt góða ráðgjöf þurfi hann að fylgjast náið með starfseminni og átta sig á því hvernig hlutirnir gangi fyrir sig.

„Ég verð meira með núna en ég hef verið,“ segir Þórir við RÚV. Hann telur nauðsynlegt að vera til staðar, fylgjast með æfingum og leikjum og taka þátt í því að greina frammistöðu liðanna. Þórir vill einnig taka virkan þátt í eftirvinnu að loknum stórmótum þar sem farið verði yfir hvað hafi gengið vel og hvað þurfi að bæta.

Þórir segir að afreksstarfið byggist á samvinnu margra aðila og að hann einn geti ekki breytt íslenskum handbolta. Hann leggur þó áherslu á að hluti af starfi sínu sé að ögra þjálfurum og stuðla að faglegri umræðu um það sem betur megi fara.

Þannig verði hægt að þróa starf landsliðanna áfram og skapa umhverfi þar sem allir séu stöðugt að leita leiða til framfara. Þórir mun vinna með afreksráði HSÍ þar sem landsliðsþjálfararnir, íþróttastjóri sambandsins og aðrir lykilaðilar koma að stefnumótun og uppbyggingu afreksstarfsins.

Þórir mun fylgja kvennalandsliðinu á Evrópumótið í desember og karlalandsliðinu á heimsmeistaramótið í janúar. Þar mun hann fá tækifæri til að vinna enn nánar með Snorra Steini og Arnari og nýta þá miklu reynslu sem hann hefur öðlast á löngum þjálfaraferli.

Þórir hefur tekið þátt í meira en 30 stórmótum og unnið fjölda titla með norska kvennalandsliðinu. Hann telur að sú reynsla geti nýst íslenskum handbolta en leggur jafnframt áherslu á að árangur byggist fyrst og fremst á öflugu samstarfi allra þeirra sem koma að starfinu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top