Karen Tinna Demain missti af 24–23 sigri ÍR á Stjörnunni í lokaleik Olís-deildar kvenna fyrir landsliðshléið. Karen Tinna puttabrotnaði á æfingu í aðdraganda leiksins, að því er Stymmi klippari greindi frá í nýjasta þætti Handkastsins. „Karen Tinna Demain var ekki með ÍR þar sem hún puttabrotnaði á æfingu fyrir leikinn. Talandi um góðan tíma til að puttabrotna, þá var þetta með betri tímasetningum þar sem liðið er komið í pásu núna,“ sagði Stymmi. ÍR er í 5.sæti Olís-deildarinnar eftir sigurinn í gær með 11 stig og fór upp fyrir Selfoss. ÍR mætir HK og KA/Þór í desember og verður Karen Tinna líklega í kapphlaupi við tímann að ná þeim leikjum áður en við tekur jólafrí.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.