Held að það sé enginn annar svona leikur á Íslandi
Egill Bjarni Friðjónsson

Dagur Gautason, leikmaður KA, var í skýjunum eftir 35-30 útisigur liðsins gegn Þór í Akureyrarslagnum í Olís-deild karla í gær. Dagur, sem skoraði fimm mörk í leiknum, segir KA-menn hafa beðið eftir þessum leik frá því í september þegar liðið tapaði fyrri viðureign liðanna á tímabilinu.

„Fyrstu viðbrögð eru bara geðveik. Þessir leikir eru svo ótrúlegir, stemningin sem myndast er einstök og það er svo mikið undir. Ég held að það sé enginn annar svona leikur á Íslandi, ég þori að fullyrða það,“ sagði Dagur í viðtali sem birtist á samfélagsmiðlum KA eftir leikinn.

Dagur var sérstaklega ánægður með stemninguna í húsinu og hrósaði stuðningsmönnum beggja liða fyrir þeirra þátt í að skapa magnaða umgjörð um leikinn.

„Maður er bara að ná sér niður. Geðveikt hrós á alla sem mættu, bæði Þórsara og KA-fólk. Ég er með hellu fyrir eyrunum. Það er geðveikt að spila svona leiki og hvað þá þegar þeir vinnast.“

KA-menn höfðu harma að hefna eftir tap gegn Þór í fyrri viðureign liðanna í september. Að sögn Dags hafði sá ósigur setið lengi í leikmannahópnum og leikurinn í gær því verið sérstaklega merktur á dagatalinu.

„Tilfinningin var góð allan tímann, líka fyrir leikinn. Við erum eiginlega búnir að hugsa um þennan leik frá því í september. Það sveið svo mikið að við vorum strax búnir að merkja þennan dag og þetta var leikur sem við urðum að vinna. Við settum mikið púður í það.“

Dagur telur að KA-menn hafi lært af mistökunum úr fyrri leiknum, þar sem of mikil ákefð hafi haft áhrif á frammistöðu liðsins.

„Við vorum of gíraðir fyrir fyrri leikinn og það var það sem við þurftum að laga fyrir þennan leik. Mér fannst það takast nokkuð vel.“

Olís-deildin er nú hálfnuð og KA situr í 3. sæti með 16 stig eftir ellefu umferðir, sex stigum á eftir toppliði Hauka sem hefur unnið alla ellefu leiki sína til þessa. Dagur segir KA-menn heilt yfir geta verið ánægða með frammistöðuna á fyrri hluta tímabilsins þótt vissulega séu nokkur úrslit sem svíði enn.

„Deildin er hálfnuð núna og við erum í 3. sæti. Heilt yfir getum við verið sáttir. Það eru nokkrir leikir sem svíða, fyrri leikurinn gegn Þór meðal annars, en annars höfum við verið flottir.“

Þór situr hins vegar í 10. sæti deildarinnar með sex stig, jafn mörg og HK sem er í 11. sæti en á leik til góða. KA-menn fara því inn í síðari hluta tímabilsins í góðri stöðu í efri hluta deildarinnar eftir kærkominn sigur á erkifjendunum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top