Skanderborg með sigur í Íslendingaslag
Kristinn Steinn Traustason

Skanderborg vann góðan sigur á Ribe-Esbjerg þegar liðin mættust á heimavelli Skanderborg. Það er óhætt að segja að Íslendingarnir hafi verið í stóru hlutverki í kvöld en Kristján Örn Kristjánsson, Donni átti stórleik fyrir heimamenn.

Lokatölurnar í leiknum urðu 35-33 en Donni skoraði tólf mörk úr átján skotum, gaf sjö stoðsendingar og fékk eina brottvísun að auki en hjá gestunum skoraði Elvar Ásgeirsson sex mörk úr tíu skotum og gaf fimm stoðsendingar að auki. Skanderborg sitja í fimmta sæti deildarinnar á meðan Ribe-Esbjerg eru í áttunda sæti deildarinnar.

Í Noregi töpuðu nýliðar Viking á útivelli gegn Fjellhammer með þremur mörkum, 36-33 en Tryggvi Garðar Jónsson fór á kostum í liði gestanna en hann skoraði níu mörk úr sautján skotum og gaf fjórar stoðsendingar að auki. Viking eru í ellefta sæti deildarinnar.

Úrslit dagsins:

Skanderborg 35-33 Ribe-Esbjerg

Fjellhammer 36-33 Viking

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top