Beinir Johannesen, forsætisráðherra Færeyja og sjálfur handboltamaður, hefur boðað formenn allra stjórnmálaflokka í Færeyjum til fundar í kjölfar þess að Alþjóðaólympíunefndin (IOC) hafnaði því að færeysku handboltalandsliðin fengju að taka þátt í undankeppni Ólympíuleikanna 2028. Mikil óánægja ríkir í Færeyjum eftir að IOC staðfesti að færeysku handboltalandsliðin fái ekki að taka þátt í undankeppni Ólympíuleikanna í Los Angeles árið 2028, jafnvel þótt þau vinni sér þátttökurétt á íþróttalegum forsendum. Ástæðan er stjórnskipuleg staða Færeyja innan danska ríkjasambandsins. Beinir Johannesen, forsætisráðherra Færeyja, brást við tíðindunum með yfirlýsingu þar sem hann boðaði formenn allra stjórnmálaflokka til fundar. Beinir er sjálfur handboltamaður og hefur undanfarna daga verið fjallað um þátttöku hans í íþróttinni samhliða störfum hans sem forsætisráðherra. „Þetta er alveg skýrt. Það er engin leið fram hjá þessu og við getum ekki lengur bent á aðra. Nú er boltinn hjá okkur,“ segir Beinir í yfirlýsingu sinni. Forsætisráðherrann segir alla stjórnmálaflokka Færeyja sammála um að landið eigi að fá sjálfstæða aðild að IOC, enda sé það markmið að finna í stjórnarsáttmálanum. Málið snúist þó um meira en íþróttir þar sem núverandi fyrirkomulag innan danska ríkjasambandsins veiti Færeyjum ekki nægilegar heimildir til að koma fram fyrir eigin hönd á alþjóðavettvangi. Ákvörðun IOC kemur í kjölfar fundar fulltrúa Íþróttasambands Færeyja og Alþjóðaólympíunefndarinnar í Lausanne þann 10. nóvember. Þar var staðfest að Færeyingar fengju hvorki sjálfstæða ólympíska viðurkenningu né sérstaka undanþágu fyrir handboltalandslið sín. Ef Færeyingar tryggðu sér þátttökurétt en Danir ekki, gæti þó komið til greina að Færeyingar kepptu undir dönskum fána, í dönskum landsliðsbúningum og með danska þjóðsönginn. Bæði Íþróttasamband Færeyja og Handknattleikssamband Færeyja hafa hafnað þeirri leið. Færeyingar hafa barist fyrir sjálfstæðri aðild að IOC um áratugaskeið en fyrsta umsókn þeirra var lögð fram árið 1984. Þrátt fyrir að keppa undir eigin fána á heims- og Evrópumótum í handbolta hafa þeir ekki fengið sambærilega viðurkenningu innan ólympíuhreyfingarinnar. Beinir vill nú ná samstöðu allra stjórnmálaflokka um næstu skref og finna lausn á málinu sem hefur þróast úr íþróttalegu ágreiningsefni yfir í pólitískt stórmál í Færeyjum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.