Nefnir þrjá lykilþætti sem íslenskur handbolti verður að bæta
Kristinn Steinn Traustason

Þórir Hergeirsson, nýráðinn afreksstjóri HSÍ hefur skýrar hugmyndir um hvaða þætti þurfi að efla í íslenskum handbolta til að landsliðin geti tekið næsta skref á alþjóðavettvangi.

Í viðtali við RÚV sem birtist á dögunum nefnir Þórir þrjú atriði sem hann telur sérstaklega mikilvæg fyrir framtíð íslensks handbolta. Um er að ræða markmannsþjálfun, styrktarþjálfun og hugræna þjálfun yngri landsliðsmanna.

Þórir telur að með markvissri vinnu á þessum sviðum megi bæta afreksumhverfi íslenskra handboltamanna og auka möguleika landsliðanna á árangri.

Fyrsta atriðið sem Þórir nefnir er markmannsþjálfun. Hann telur nauðsynlegt að auka þekkingu á þessu sviði, styrkja starfandi markmannsþjálfara og fjölga þeim. Markmiðið er að íslenskur handbolti geti þróað fleiri markmenn í fremstu röð, bæði karla og kvenna.

Þórir bendir á mikilvægi markvarðarstöðunnar í árangri góðra handknattleiksliða og telur að þar sé tækifæri til framfara.

Annað atriðið er styrktarþjálfun. Þórir vill að hún verði sett í forgang hjá öllu landsliðsfólki og að leikmenn stundi markvissa styrktarþjálfun tvisvar til þrisvar í viku, allt árið um kring. Þetta eigi jafnt við um karla og konur.

Með því vill hann stuðla að því að íslenskir leikmenn verði betur undirbúnir fyrir þær líkamlegu kröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum handbolta.

Þriðja atriðið snýr að andlega þættinum. Þórir vill að markviss hugræn þjálfun verði hluti af starfi yngri landsliða Íslands. Þannig verði ungir leikmenn betur undirbúnir fyrir þær kröfur og áskoranir sem fylgja því að keppa á hæsta stigi.

Þórir telur að með tilkomu Afreksmiðstöðvar Íslands hafi skapast auknir möguleikar á að veita landsliðsfólki faglega þjónustu, meðal annars á sviði sálfræði, næringar og líkamlegrar þjálfunar.

Þórir leggur áherslu á að breytingarnar geti ekki eingöngu átt sér stað innan landsliðanna. Félögin í landinu þurfi einnig að koma að verkefninu og taka þátt í að bæta umhverfi ungra og efnilegra handboltamanna.

Hann segir að ráðning eins afreksstjóra muni ekki ein og sér skila betri árangri heldur þurfi allt handboltasamfélagið að vinna saman. Markmiðið sé að skapa umhverfi þar sem karlalandsliðið geti áfram barist um verðlaun á stórmótum og kvennalandsliðið geti skipað sér í hóp tíu bestu þjóða heims.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top