Guðmundur Bragi með tíu mörk í Íslendinga slag í Austurríki
8ERNER

Þrír Íslendingar voru í eldlínunni þegar Bregenz vann 29–26 útisigur á Barnbach/Köflach í 11. umferð austurrísku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag. Guðmundur Bragi Ástþórsson var atkvæðamestur Íslendinganna með tíu mörk.

Bregenz hafði tveggja marka forystu í hálfleik, 14–12, og náði að halda heimamönnum frá sér í síðari hálfleik. Lokatölur urðu 29–26 fyrir Bregenz.

Guðmundur Bragi Ástþórsson var markahæstur allra leikmanna með tíu mörk og Jón Ómar Gíslason skoraði þrjú mörk fyrir Bregenz.

Hjá Barnbach/Köflach skoraði Tumi Rúnarsson fimm mörk og var næstmarkahæstur í liði heimamanna.

Með sigrinum fór Bregenz upp í ellefu stig og upp fyrir Barnbach/Köflach í deildinni.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top