ÍBV með endurkomusigur á Akureyri
Egill Bjarni Friðjónsson

KA/Þór og ÍBV mættust á Akureyri í Olís deild kvenna í leik sem var að ljúka. Heimastúlkur voru sterkari í fyrri hálfleik og voru KA/Þór þremur mörkum yfir í hálfleik, 19-16 en ÍBV stúlkur komu gríðarlega vel stemmdar inn í síðari hálfleik og snéru leiknum sér í vil og lönduðu að lokum þriggja marka sigri 32-35 og Eyjastúlkur halda í topplið Hauka en liðið er í öðru sæti deildarinnar. KA/Þór er í sjöunda sæti deildarinnar.

Atkvæðamest í liði heimastúlkna var Lydia Gunnþórsdóttir með sjö mörk. Bergrós Ásta Guðmundsdóttir og Sólveig Lára Kristjánsdóttir skoruðu fimm mörk og aðrar minna.

Sandra Erlingsdóttir fór fyrir sóknarleik gestanna en hún skoraði tólf mörk. Amelía Dís Einarsdóttir og Ásta Halla Hjarðar skoruðu fimm mörk hvor og aðrar skoruðu minna.

Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top