Selfoss og Valur mættust á Selfossi í síðasta leik dagsins í Olís deild kvenna og var það ljóst frá byrjun hvoru megin sigurinn myndi enda en gestirnir frá Hlíðarenda tóku fljótt yfir og voru tíu mörkum yfir í hálfleik 10-20. Gestirnir héldu áfram í síðari hálfleik og sigurinn var aldrei í hættu en lokatölur voru 23-34 fyrir Hlíðarendastúlkur. Atkvæðamest í liði Selfoss var Hulda Hrönn Bragadóttir en hún skoraði sjö mörk. Harpa Valey Gylfadóttir og Perla Ruth Albertsdóttir skoruðu fimm, aðrar skoruðu minna. Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir og Katla María Magnúsdóttir skoruðu báðar níu mörk fyrir gestina í kvöld. Guðrún Hekla Traustadóttir skoraði fjögur og aðrar minna. Sage By Saga Sif styður kvennaumfjöllun Handkastsins - Kóðinn: handkastid veitir 15% afslátt í vefverslun Sage By Saga Sif.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.