Þórir Hergeirsson, nýráðinn afreksstjóri HSÍ verður með íslensku A-landsliðunum á næstu tveimur stórmótum. Hann mun fylgja kvennalandsliðinu á Evrópumótið í desember og karlalandsliðinu á heimsmeistaramótið í janúar. Þetta staðfestir Þórir í viðtali við RÚV á dögunum. Þórir hefur tekið við hálfu stöðugildi sem afreksstjóri HSÍ í gegnum Afreksmiðstöð Íslands. Hann hefur undanfarin misseri verið í ráðgjafarhlutverki hjá sambandinu en mun nú koma mun meira að daglegu starfi landsliðanna. Hann segir mikilvægt að vera nálægt þjálfurum og leikmönnum til að geta veitt faglega ráðgjöf og tekið þátt í að greina frammistöðu liðanna. Fyrsta stórmót Þóris í nýju hlutverki verður Evrópumót kvenna sem hefst í desember. Þar mun hann starfa með Arnari Péturssyni landsliðsþjálfara og hans teymi. „Ég er í hálfri stöðu og verð kannski ekki með alla daga allan tímann,“ segir Þórir við RÚV. Hann gerir þó ráð fyrir að vera með íslenska liðinu að stærstum hluta í Svíþjóð og fylgja því í riðlakeppninni. Ísland mætir Slóveníu 3. desember, Svartfjallalandi 5. desember og Ungverjalandi 7. desember. Þórir telur að íslenska liðið eigi möguleika á að komast áfram úr riðlinum þótt verkefnið verði erfitt. Að Evrópumótinu loknu tekur við undirbúningur karlalandsliðsins fyrir heimsmeistaramótið í janúar. Þórir mun einnig koma að því verkefni og fylgja Snorra Steini Guðjónssyni og íslenska liðinu á mótið. „Ég fer með þeim út og verð með þeim,“ segir Þórir við RÚV. Hann leggur áherslu á að hlutverk sitt sé ekki að taka ákvarðanir af landsliðsþjálfurunum heldur að vera þeim til stuðnings og veita faglega ráðgjöf. Þórir vill einnig taka þátt í greiningarvinnu eftir stórmótin til að meta hvað hafi gengið vel og hvað þurfi að bæta. Ísland mætir Barein, Japan og Norður-Makedóníu í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í janúar. Þórir hefur sjálfur tekið þátt í meira en 30 stórmótum á þjálfaraferli sínum og unnið fjölda stórtitla með norska kvennalandsliðinu. Sú reynsla verður nú nýtt í þágu íslensku landsliðanna. Hann leggur þó áherslu á að árangur af nýju skipulagi afreksstarfsins verði ekki endilega sýnilegur strax á næstu stórmótum heldur sé um langtímaverkefni að ræða.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.