Langþráður sigur hjá Hvíta Riddaranum
Lárus Wöhler

Hvíti Riddarinn og Víkingur 2 mættust í Grill 66 deild karla í dag en leikið var í Mosfellsbæ.

Fyrri hálfleikur var jafn og liðin mjög áþekk að getu. En síðustu 5 mínúturnar í fyrri hálfleik breyttu Mosfellingar jafnri stöðu og fóru inn til búningsherbergja með 3 marka forskot.

Hálfleikstölur 18-15.

Mosfellingar byrjuðu gríðarlega sterkt í seinni hálfleik og komust 7 mörkum yfir eftir einungis 5 mínútna leik. Með því lögðu þeir grunninn að sigrinum. Víkingarnir klóruðu þó aðeins í bakkann en nær komust þeir ekki og lokatölur 29-26.

Hjá Hvíta Riddaranum var Ævar Smári Gunnarsson markahæstur með 8 mörk. Sigurjón Bragi Atlason varði 16 skot.

Hjá Víkingi var Benedikt Emil Aðalsteinsson markahæstur með 8 mörk. Daði Bergmann varði 15 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top