Elín Rósa Magnúsdóttir var markahæst í liði Blomberg-Lippe sem vann mikilvægan 26–24 útisigur á Borussia Dortmund í 9. umferð þýsku Bundesligunnar í handbolta í kvöld. Með sigrinum fór Blomberg-Lippe upp fyrir Dortmund í annað sæti deildarinnar. Elín Rósa Magnúsdóttir átti góðan leik fyrir gestina og skoraði sex mörk, líkt og liðsfélagi hennar Maxi Mühlner. Díana Dögg Magnúsdóttir komst einnig á blað hjá Blomberg-Lippe með eitt mark. Dortmund byrjaði leikinn betur og komst meðal annars í 10–7 forystu í fyrri hálfleik. Blomberg-Lippe náði hins vegar að minnka muninn og var staðan 13–11 fyrir Dortmund í hálfleik. Gestirnir sneru leiknum sér í vil í síðari hálfleik og náðu að tryggja sér tveggja marka sigur, 26–24. Blomberg-Lippe er enn taplaust í deildinni eftir átta leiki, með sex sigra og tvö jafntefli. Liðið er með 14 stig, jafnmörg og Dortmund, en hefur leikið einum leik færra. Thüringer HC er á toppi deildarinnar með 15 stig eftir átta leiki eftir 37-26 sigur á Neckarsulmer í dag. Alfa Brá Oddsdóttir Hagalín komst ekki á blað í dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.