Þjálfari næsta mótherja Vals opnar sig um baráttuna við geðhvarfasýki
Baldur Þorgilsson

Toni Johansson, 36 ára sænskur þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Mors-Thy, hefur opnað sig um baráttu sína við geðhvarfasýki og þær áskoranir sem fylgja því að starfa sem atvinnuþjálfari í handbolta samhliða veikindunum. Johansson og lærisveinar hans taka á móti Val í Evrópudeildinni næstkomandi þriðjudag.

Johansson greindist með geðhvarfasýki árið 2021 eftir að hafa um árabil upplifað miklar sveiflur í líðan án þess að vita nákvæmlega hvað olli þeim. Í viðtali við danska TV 2 Sport segir hann að greiningin hafi veitt honum mikilvægar skýringar á ýmsu sem hann hafði gengið í gegnum á lífsleiðinni.

„Þegar ég lít til baka yfir líf mitt og þær ákvarðanir sem ég hef tekið fæ ég skýringar á því hvers vegna ég hef hagað mér eins og ég hef gert. Þetta eru ekki afsakanir heldur skýringar á því hvers vegna hlutirnir hafa þróast eins og þeir hafa gert og það er gott að vita,“ segir Johansson í samtali við TV 2 Sport.

Svíinn segir að lyfjameðferð og fastar daglegar venjur hjálpi honum að takast á við veikindin. Hann viðurkennir þó að álagið sem fylgir þjálfarastarfinu geti reynst sérstaklega krefjandi þegar hann glímir við þunglyndistímabil.

„Ef það er mikið álag í vinnunni og ég er á sama tíma á erfiðu tímabili með þunglyndi getur verið mjög erfitt að fara að sofa í tíu klukkustundir og vakna enn þreyttari en þegar maður lagðist til svefns. Þá er erfitt að lifa,“ segir Johansson.

Johansson er á sínu fyrsta tímabili sem aðalþjálfari Mors-Thy í dönsku úrvalsdeildinni. Hann hefur fengið jákvæð viðbrögð við því að ræða veikindin opinberlega en danskir fjölmiðlar hafa meðal annars fjallað um stuðning sem hann hefur fengið frá fólki sem starfar að geðheilbrigðismálum.

Mætir Val í mikilvægum leik á þriðjudaginn

Johansson og lærisveinar hans í Mors-Thy taka á móti Val í fimmtu umferð riðlakeppni Evrópudeildarinnar næstkomandi þriðjudag. Leikurinn fer fram í Sparekassen Thy Arena í Thisted og hefst klukkan 19:45.

Liðin mættust á Hlíðarenda í lok september þar sem Valsmenn unnu afar sannfærandi ellefu marka sigur, 39–28. Mors-Thy hefur síðan unnið einn leik í riðlinum, gegn ungverska liðinu Tatabánya, en tapað hinum þremur.

Valur er í öðru sæti H-riðils með fjögur stig eftir fjóra leiki á meðan Mors-Thy er í þriðja sæti með tvö stig. Slóvenska liðið Slovan Ljubljana er á toppnum með átta stig en Tatabánya er á botninum með tvö stig.

Tvö efstu lið riðilsins komast áfram í umspil Evrópudeildarinnar og því er mikið undir hjá báðum liðum á þriðjudaginn. Með sigri myndu Valsmenn taka stórt skref í átt að sæti í næstu umferð keppninnar, en Mors-Thy þarf á stigunum að halda til að halda möguleikum sínum á áframhaldi á lífi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top