Stórmótið í hættu hjá Viggó
Erlangen

Viggó Kristjánsson leikmaður HC Erlangen gæti misst af heimsmeistaramótinu í janúar vegna meiðsla. Samkvæmt heimildum Handkastsins fór Viggó í myndatöku eftir síðasta landsliðsverkefni og benda þær upplýsingar sem liggja fyrir til þess að þátttaka hans á mótinu sé í hættu.

Staða Viggós var rædd í nýjasta þætti Handkastsins þar sem Stymmi klippari lýsti áhyggjum sínum af meiðslum í aðdraganda HM. „Ég sagði það einhvern tímann fyrr í vetur að ég væri með vonda tilfinningu fyrir þessu móti í janúar. Ég óttaðist að við myndum lenda í einhverjum helvítis meiðslavandræðum og ég hef haft það á tilfinningunni í heilt ár,“ sagði Stymmi klippari.

Í þættinum var einnig rætt hvort Viggó þyrfti að taka sér hlé til að ná sér að fullu. Hann er á síðasta ári sínu hjá Erlangen og gengur í raðir Flensburg að tímabilinu loknu á tveggja ára samningi. Spurningin sem varpað var fram var hvort hvíld nú gæti hjálpað honum að ná sér fyrir seinni hluta tímabilsins með Erlangen og komuna til Flensburg.

,,Það er áhyggjuefni við Viggó. Hann hefur verið í brasi með skrokkinn á sér og það vantar ekki dugnaðinn og annað hjá honum. En hann er á sínu síðasta ári hjá Erlangen og hann er að fara til Flensburg. Hann er með tveggja ára samning þar, sem hann verður að geta staðið undir. Þarf hann einfaldlega að taka sér pásu til að ná sér góðum til að verða áframhaldandi fit , bæði eftir áramót hjá Erlangen og síðan hjá Flensburg," sagði Kristinn Björgúlfsson í þættinum.

Tíðindin eru áhyggjuefni fyrir íslenska landsliðið sem glímir þegar við óvissu í stöðu hægri skyttu. Handkastið greindi fyrst fjölmiðla frá því að Magdeburg reiknaði með að Ómar Ingi Magnússon myndi missa af öllum leikjum liðsins fram að áramótum eftir bakslag í meiðsli aftan í læri.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top