Melsungen sagt hafa samið við þrjá leikmenn fyrir næsta tímabil
FEDERICO GAMBARINI /AFP

Þýska úrvalsdeildarfélagið MT Melsungen er samkvæmt fregnum Sport Bild langt komið með að styrkja leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil. Spænski markvörðurinn Xoan Ledo er sagður á leið til félagsins frá Logroño en þá mun félagið einnig hafa náð samkomulagi við tvo aðra leikmenn.

Samningur ungverska landsliðsmarkvarðarins Kristóf Palasics við Melsungen rennur út næsta sumar og hefur hann verið orðaður við endurkomu til heimalandsins. Forráðamenn þýska félagsins hafa því leitað að nýjum markverði til að mynda markvarðapar með Svartfellingnum Nebojša Simić.

Nú bendir flest til þess að það verði hlutskipti Spánverjans, Xoan Ledo sem hefur leikið með spænska liðinu Logroño undanfarin misseri. Samkvæmt Sport Bild á aðeins eiga eftir að ganga frá síðustu formsatriðum áður en hægt verður að tilkynna félagaskiptin opinberlega.

Ledo á að baki fjórtán landsleiki fyrir Spán og var á mála hjá Barcelona á árunum 2014 til 2016 þar sem hann lék með varaliði félagsins. Hann hefur verið á meðal áberandi markvarða spænsku úrvalsdeildarinnar að undanförnu og var tilnefndur sem besti leikmaður deildarinnar í október.

Ledo er hins vegar ekki eini leikmaðurinn sem Melsungen er sagt hafa tryggt sér. Samkvæmt Sport Bild hefur félagið einnig náð samkomulagi við svissneska línumanninn Lukas Laube leikmann THW Kiel og þýsku skyttuna Sören Steinhaus. Báðir eru sagðir hafa þegar gengist undir læknisskoðun hjá félaginu.

Miklar breytingar eru fram undan hjá Melsungen næsta sumar þegar Jaron Siewert tekur við þjálfun liðsins. Félagið hefur þegar staðfest komu sænsku skyttunnar Erik Persson frá Göppingen en hann kemur í stað Dainis Kristopans sem yfirgefur félagið í lok tímabilsins.

Reynir Þór Stefánsson er leikmaður MT Melsungen en hann er á sínu öðru ári hjá félaginu eftir að hafa gengið í raðir félagsins frá Fram sumarið 2025.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top