Haukar halda úrslitahelgi bikarsins næstu tvö árin
Egill Bjarni Friðjónsson)

Haukar verða gestgjafar úrslitahelgar Powerade bikarsins næstu tvö árin eins og undanfarin ár. Stjórn Handknattleikssambands Íslands (HSÍ) hefur samþykkt að ganga til samninga við félagið eftir að hafa farið yfir umsóknir sem bárust í kjölfar útboðs sem sent var til félaganna í haust.

Tvö félög sóttu um að halda úrslitavikuna og skiluðu bæði metnaðarfullum umsóknum. Að sögn HSÍ reyndist tilboð Hauka hagstæðara og verður því samið við Hafnarfjarðarfélagið út keppnistímabilið 2027–2028.

Úrslitavika Powerade bikarsins er einn af hápunktum handboltaársins hér á landi en þar mætast fjögur lið í undanúrslitum í bæði karla- og kvennaflokki áður en úrslitaleikirnir fara fram. Samhliða úrslitakeppni meistaraflokka fer einnig fram bikarkeppni yngri flokka þar sem alls tólf leikir eru spilaðir í sömu umgjörð.

Með samningnum við Hauka fær úrslitavikan fastan samastað næstu tvö árin. HSÍ telur það skapa tækifæri til að byggja enn frekar upp umgjörð keppninnar, bæði hvað varðar stemningu í stúkunni, aðstöðu keppnisliða og upplifun sjónvarpsáhorfenda.

Í tilkynningu frá HSÍ er báðum félögunum sem sóttu um að halda úrslitavikuna þakkað fyrir umsóknirnar og þann metnað sem þau sýndu í ferlinu.

Næsta úrslitavika Powerade bikarsins fer fram dagana 30. mars til 4. apríl 2027.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top