Stjarnan situr á botni Olís-deildar kvenna með tvö stig eftir tíu leiki. Liðið tapaði með einu marki fyrir ÍR í lokaleik deildarinnar fyrir landsliðshlé og hefur nú tapað báðum deildarleikjum sínum gegn Breiðhyltingum í vetur. Farið var yfir stöðu Stjörnunnar í nýjasta þætti Handkastsins. Arnar Daði Arnarsson, þáttastjórnandi og ritstjóri Handkastsins, er þjálfari liðsins. Sara Rún Gísladóttir missti af leiknum vegna veikinda eftir að hafa skorað ellefu mörk þegar Stjarnan sló ÍBV út úr Powerade-bikarnum. „Ég ætla að vona að hún hafi verið helvíti veik,“ sagði Einar Ingi Hrafnsson. Stymmi klipparisagði Söru Rún hafa verið töluvert veika og benti á að Stjarnan hefði einnig þurft að leika án Karenar Tinnu gegn ÍR. „Maður er farinn að finna til með þjálfara Stjörnunnar,“ sagði Stymmi og rifjaði upp að liðið hefði misst tvo leikmenn í meiðsli í upphafi leiks gegn HK. Hann benti á að ÍR hefði verið duglegra að safna stigum en að báðir innbyrðis leikirnir hefðu verið jafnir. Fyrri leikurinn tapaðist með þremur mörkum og sá síðari með einu. „Þetta á alveg að vera möguleiki fyrir Stjörnuna.“ Einar Ingi taldi að Stjarnan þyrfti að bæta sóknarleikinn, þótt bikarsigurinn á ÍBV sýndi hvað liðið gæti gert. Hann sagðist bjartsýnn á framhaldið og sendi þjálfaranum létta áminningu. „Arnar Daði þarf að passa að taka C-vítamínin sín og ekki gleyma sér að halda heilsu.“ Kristinn Björgúlfsson benti á að miklar breytingar hefðu orðið á Stjörnuliðinu fyrir tímabilið og að Natasja Hammerværi nú komin aftur inn í liðið. Aðeins tvö stig skildu Stjörnuna frá sjöunda sætinu, þótt töpin gegn ÍR gætu reynst dýr þegar upp yrði staðið. „Ég er ekki tilbúinn að dæma Stjörnuna niður þó. Þær geta náð þessum stigum sem upp á vantar til að ná þessum liðum fyrir ofan sig,“ sagði Kristinn.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.