Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals var svekktur eftir tap sinna manna gegn Mors-Thy í Danmörku í kvöld í Evrópudeildinni. Mors-Thy vann þriggja marka sigur 36-33 eftir að hafa verið einu marki yfir í hálfleik 16-15. Slæmur kafli um miðbik seinni hálfleik reyndist Valsliðinu dýr en danska liðið skoraði átta mörk gegn einu frá Val. Ágúst taldi sína menn hafa farið illa með góð marktækifæri og sagði frammistöðuna í síðari hálfleik hafa verið ólíka því sem liðið hefur sýnt að undanförnu. Þrátt fyrir tapið eru örlög Valsara enn í þeirra eigin höndum fyrir lokaumferð riðlakeppninnar. „Þetta er svekkjandi tap eftir ágætis fyrri hálfleik sérstaklega. Mér fannst við á stórum köflum góðir sóknarlega. Við byrjuðum reyndar klaufalega og gerðum ákveðin tæknimistök sem þeir voru fljótir að refsa okkur fyrir. Síðan náðum við ágætis tökum á þessu en algjör klaufaskapur að vera ekki með forystu í hálfleik. Það skrifast aðallega á það að við vorum að fara illa með upplögð marktækifæri,“ sagði Ágúst í samtali við Handkastið eftir leikinn. Ágúst var ekki jafn ánægður með frammistöðu sinna manna í síðari hálfleik þar sem heimamenn náðu að skapa sér forskot sem Valsarar náðu ekki að vinna upp. „Í seinni hálfleik vorum við ólíkir sjálfum okkur, sérstaklega um miðbik seinni hálfleiks, og fórum illa að ráði okkar bæði varnar- og sóknarlega. Þeir voru að opna okkur allt of auðveldlega og við lentum í því að fá of mikið af brottvísunum. Sóknarlega náðum við að skapa okkur ágætis færi en fórum illa með þau færi.“ Þrátt fyrir tapið er staðan í riðlinum þannig að Valur og Mors-Thy eru með jafnmörg stig fyrir lokaumferðina. Valsarar standa hins vegar betur að vígi í innbyrðis viðureignum liðanna og eru því í góðri stöðu fyrir lokaumferðina. „Það eru vonbrigði að ná ekki að taka í það minnsta eitt stig en við stigum aðeins upp í lokin og náðum að minnka muninn. Örlögin eru ennþá í okkar höndum. Við þurfum að reyna að fylla Valsheimilið á þriðjudaginn í næstu viku þegar við mætum Slovan og reyna að leggja þá að velli.“ Í lokaumferðinni tekur Valur á móti Slovan Bratislava sem hefur þegar tryggt sér sæti í næstu umferð keppninnar. Á sama tíma mætir Mors-Thy ungverska liðinu Tatabánya. Sigur Vals gegn Slovan myndi því tryggja liðinu áframhaldandi þátttöku í keppninni, óháð úrslitum í leik Mors-Thy og Tatabánya. Áður en að þeim mikilvæga leik kemur þurfa Valsarar þó að beina sjónum sínum að Olís-deildinni þar sem liðið mætir Selfossi á föstudaginn. „Næsta verkefni okkar er að undirbúa leikinn gegn Selfossi á föstudaginn,“ sagði Ágúst Jóhannsson að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.