Aron Pálmarsson, þjálfari FH var svekktur eftir fimm marka tap liðsins gegn spænska liðinu Bidasoa í Evrópudeildinni í Kaplakrika í kvöld. Lokatölur urðu 35–40 en FH er enn án stiga í riðlakeppninni þegar aðeins ein umferð er eftir. Í samtali við Vísi eftir leikinn sagði Aron að FH-ingar hefðu ekki nýtt tækifærin sem buðust í fyrri hálfleik. Liðið fór illa með nokkur upplögð marktækifæri og náði ekki að nýta sér þá möguleika sem gáfust til að halda í við spænska liðið. „Við gengum ekki á lagið í fyrri hálfleik, sénsarnir okkar voru miklir þar. Við klúðruðum svolítið af dauðafærum og vorum með lélega nýtingu í fyrri hálfleik, bættum það mikið í þeim seinni en þá var það orðið of seint,“ sagði Aron við Vísi. „Við leyfðum þeim að spila of mikið sinn leik. Þeir eru helvíti klókir og halda lengi í boltann og eru erfiðir við að eiga,“ sagði Aron og bætti við að FH hefði þurft að vera ákveðnara í varnarleiknum, brjóta oftar á andstæðingnum og koma í veg fyrir að Bidasoa næði að byggja upp langar sóknir. FH var aðeins með 15% markvörslu í leiknum. FH hefur nú tapað öllum fimm leikjum sínum í riðlakeppninni og sitja á botni riðilsins án stiga. Ein umferð er eftir en liðið mætir franska liðinu, Limoges í Frakklandi í næstu viku í lokaumferðinni. „Þetta er fín reynsla, við fáum að bera okkur saman við liðin í Evrópu og það er líka gaman að spila meira en að æfa. Það er miklu skemmtilegra. Þessar Evrópuferðir gefa okkur líka mikið sem lið,“ sagði Aron sem telur leikina gegn erlendum andstæðingum hjálpa FH að þróa sinn eigin leik.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.