Valsmenn með bakið upp við vegg eftir tap í Danmörku
Beautiful Sports / Orange Pictures / AFP

Valur mátti sætta sig við þriggja marka tap gegn danska liðinu Mors-Thy í Evrópudeild karla í handknattleik í kvöld. Leiknum lauk með 36-33 sigri heimamanna eftir að staðan hafði verið 16-15 í hálfleik.

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Danirnir höfðu eins marks forskot þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik, 16-15.

Mikið var skorað í síðari hálfleik en Valsmenn skoruðu 18 mörk gegn 20 mörkum heimamanna á síðustu 30 mínútunum. Valsmönnum tókst því ekki að vinna upp forskot danska liðsins og niðurstaðan varð þriggja marka tap, 33-36.

Stiven Tobar Valencia var markahæstur í liði Vals með níu mörk og Gunnar Róbertsson kom næstur með átta mörk. Bjarni í Selvindi skoraði fimm mörk.

Hjá heimamönnum var Frederik Kvistgaard Bak atkvæðamestur með ellefu mörk. Jonatan Ingemann Mollerup skoraði sex mörk og Oliver Sonne Wosniak fimm mörk.

Markaskorarar Vals: Stiven Tobar Valencia 9, Gunnar Róbertsson 8, Bjarni í Selvindi 5, Tjörvi Týr Gíslason 3, Arnór Snær Óskarsson 3, Allan Nordberg 3, Daníel Montoro 1 og Dagur Leó Fannarsson 1.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top